Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. nóvember 2025 13:55 Arnar Gunnlaugsson fór fögrum orðum um Aron Einar Gunnarsson á blaðamannafundinum. vísir Jóhann Berg Guðmundsson og Hörður Björgvin Magnússon eru mættir aftur í íslenska landsliðshópinn og verða með liðinu í leikjunum gegn Aserbaísjan og Úkraínu síðar í mánuðinum. Landsliðsþjálfarinn vonar að þeir gefi jafn mikið af sér innan hópsins og Aron Einar Gunnarsson.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson útskýrði valið á þeim tveimur á blaðamannafundi sem fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu. Arnar sagði Jóhann Berg vera hugsaðan sem hægri kantmann og Hörð Björgvin vera hugsaðan sem fjölhæfan varnarmann sem gæti leyst bæði miðvarðar- og bakvarðarstöðuna vinstra megin, ef einhver skyldi meiðast. Þá sagði Arnar einnig að þeirra hlutverk innan hópsins væri mjög mikilvægt því þeir væru reynslumiklir landsliðsmenn og hann ætlast til að þeir gefi jafn mikið af sér og Aron Einar Gunnarsson hefur gert. „Maður ætlast til þess með Hörð og Jóa, að þeir komi inn með það sama og Aron hefur gert fyrir okkur“ sagði Arnar á blaðamannafundinum. Klippa: Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron „Aron er búinn að láta sviðið af hendi, láta ungu leikmennina stíga verulega upp og hefur hjálpað þeim bakvið tjöldin. Hann hefur ekkert verið að trana sér fram, en verið hrikalega öflugur í því verkefni og auðvitað alltaf klár í að spila hvenær sem er“ sagði Arnar einnig um fyrrum landsliðsfyrirliðann Aron Einar. „Ég á von á því að Hörður og Jói geri slíkt hið sama og það er gefandi fyrir eldri leikmenn að koma inn í ungan hóp og gefa vel af sér. Kenna hinum yngri hvernig á að höndla ákveðnar aðstæður og ég held að við getum öll verið sammála um að þessar aðstæður verða krefjandi“ sagði Arnar að lokum um Jóhann Berg og Hörð Björgvin. Ísland mætir Úkraínu og Aserbaísjan ytra þann 13. og 17. nóvember. Leikirnir munu skera úr um hvort Ísland á möguleika á því að komast á HM 2026.
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Enski boltinn Fleiri fréttir UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjá meira