Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 31. október 2025 08:19 Mikil reiði ríkir vegna málsins, bæði meðal strangtrúaðra og annarra íbúa sem þykir ósanngjarnt að sömu kröfur séu ekki gerðar til allra. Getty/Ilia Yefimovich Hundruð þúsunda strangtrúaðra gyðinga söfnuðust saman í Jerúsalem í gær til að mótmæla herskyldu, sem strangtrúaðir hafa hingað til verið undanskildir.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mótmæli brjótast út vegna áforma stjórnvalda, sem hafa unnið að því að komast að lagalegri og pólitískri málamiðlun í málinu. Undanþágan, sem strangtrúuðum er veitt sökum trúarlegrar menntunar þeirra, hefur verið afar umdeild í Ísrael og ekki síst eftir að Ísraelar hófu stríðsrekstur sinn á Gasa í kjölfar árásanna 7. október 2023. Hundruð hermanna hafa fallið í átökunum og tugþúsundir varaliða verið kallaðir til. Nokkrar truflanir urðu á daglegu lífi í Jerúsalem vegna mótmælanna.Getty/Mostafa Alkharouf Hæstiréttur Ísraels komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að engin lagalegur grundvöllur væri fyrir því að veita undanþágu frá herskyldu og að án nýrrar lagasetningar bæri hernum að kalla til strangrúaða rétt eins og aðra. Tugþúsundir strangtrúaðra manna hafa hingað til sloppið við herskyldu, til að geta sinnt trúarlegri menntun sinni. Þeir segja trúarsannfæringu sína ekki samræmast herskyldu en að þeir sinni skyldu sinni gagnvart öryggi þjóðarinnar með námi og bænum. Samkvæmt hernaðaryfirvöldum hafa um það bil 80.000 strangtrúaðir gyðingar verið kvaddir í herinn frá því að Hæstiréttur kvað upp dóm sinn en flestir ekki svarað. Nokkrir voru handteknir í kjölfarið, sem vakti mikla reiði í samfélaginu. New York Times greindi frá.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Sjá meira