Viktor Bjarki skoraði og lagði upp í fyrsta byrjunarliðsleiknum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. október 2025 18:48 Viktor Bjarki fagnar marki sínu ásamt Liam West sem lagði það upp. FCK Hinn 17 ára gamli Viktor Bjarki Daðason byrjaði sinn fyrsta leik fyrir FC Kaupmannahöfn þegar liðið sótti Hobro heim í dönsku bikarkeppninni í fótbolta. Hann gerði raunar gott betur en það, skoraði Viktor Bjarki eitt af fjórum mörkum FCK ásamt því að leggja upp annað.
Viktor Bjarki hefur komið sem stormsveipur inn í lið FCK en hann lagði upp mark í sínum fyrsta leik fyrir félagið og gerði svo gott betur þegar hann kom inn af bekknum gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu. Þar skoraði hann sitt fyrsta mark og varð um leið þriðji yngsti markaskorari í sögu Meistaradeildarinnar. Á ekki það mörgum mínútum hafði Viktor Bjarki bæði skorað og lagt upp fyrir aðallið FCK. Það kom því ef til vill ekki það mikið á óvart þegar hann var valinn í byrjunarliðið gegn Hobro sem situr í fallsæti B-deildarinnar í Danmörku. Á sama tíma var markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson á varamannabekknum. Þó hinn tvítugi Youssoufa Moukoko - kollegi Viktors Bjarka í framlínunni - steli fyrirsögnunum í kvöld með þrennu á innan við klukkustund. Annað mark hans kom eftir undirbúning Viktors Bjarka. Heimamenn minnkuðu muninn undir lok venjulegs leiktíma en í uppbótatíma skoraði Viktor Bjarki fjórða mark gestanna, lokatölur 1-4. Í fjórum leikjum með aðalliði FCK hefur Viktor Bjarki nú skorað tvö mörk og gefið tvær stoðsendingar. Ágætis tölfræði það.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir Dagný orðin sendiherra West Ham Apollon - FH | Fyrsti Evrópuleikur FH „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira