Körfubolti

Sá eftir­sóttasti treystir bara á pabba gamla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það eru margir NBA njósnarar spenntir fyrir AJ Dybantsa og hann fer líklega númer eitt í næsta nýliðavali.
Það eru margir NBA njósnarar spenntir fyrir AJ Dybantsa og hann fer líklega númer eitt í næsta nýliðavali. Getty/Vianney Thibaut

AJ Dybantsa er nafn sem körfuboltaáhugafólk mun örugglega heyra meira af í framtíðinni en það er búist við því að NBA-liðin keppi um hann í nýliðavalinu næsta sumar.

Dybantsa er enn bara átján ára gamall og spilar með háskólaliði BYU í vetur. Þar er hann á fyrsta ári.

Hann er að flestra mati einn besti ungi körfuboltamaður í heimi í dag en þessi 193 sentimetra hái framherji er með bæði gott stökkskot sem og hæfileika bakvarðar.

Það sem vekur líka athygli er að strákurinn gerir mjög, mjög lítið án pabba síns, Ace, sem er oftast rétt við hliðina á AJ.

Pabbanum líkar hins vegar ekki að vera kallaður umboðsmaður AJ. Hann er heldur ekki mikill aðdáandi þjálfara eða umboðsmanna yfir höfuð.

Hann er bara pabbi AJ, segir hann, eins og hann var löngu áður en nokkur bauð stráknum risatilboð fyrir það að spila körfubolta.

Staðan er bara svo að einn sá eftirsóttasti af framtíðarstjörnum NBA er ekki með umboðsmann í heimi þar sem umboðsmenn ráða svo miklu.

Hann hefur heldur ekki markaðsteymi sér til halds og traust til að afgreiða tilboð um styrki. Ef vörumerkjafulltrúar vilja tala við AJ, þá hringja þeir í Ace, pabba hans.

Ef þjálfari vill vinna með AJ, þá hringir hann í Ace. Einu sinni, þegar umboðsmaður laumaðist til að senda stráknum einkaskilaboð á Instagram og bauð honum íl ef AJ skrifaði undir samning við hann, þá fékk hann svar frá föðurnum. Pabbinn hefur aðgang að öllum samfélagsmiðlareikningum sonar síns.

Að hans mati er Ace að vernda son sinn fyrir þeim sem vilja aðeins hagnast á honum. Og með svo miklum peningum við höndina telur Ace að þeir ættu að vera áfram innan fjölskyldunnar. Hann vill því vera í miðju allra samningaviðræðna, allra ákvarðana, eða alls sem tengist syni hans.

Fyrir vikið hefur Ace lítinn tíma til að velta fyrir sér, eða áhuga á að velta fyrir sér, hvort þetta fyrirkomulag sé heilbrigt, hvort blanda viðskipta og foreldrahlutverks gæti haft afleiðingar fyrir fjölskyldu hans eða fyrir feril AJ. Eitt er víst að hann sker sig úr, bæði innan sem utan vallar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×