Vaktin: Dómari kveður upp um refsingu Diddy Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. október 2025 12:50 Það kemur í ljós hve þunga refsingu rapparinn fær í dag. (AP Photo/Kathy Willens Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, sem er betur þekktur sem Puff Daddy eða Diddy, verður gerð refsing í dag. Dómur mun falla stuttu eftir klukkan tvö í dag að íslenskum tíma og verður fylgst með í vakt á Vísi. Tónlistarmaðurinn hefur verið sakfelldur í tveimur ákæruliðum af fimm og mun dómari kveða upp refsingu næstkomandi föstudag 3. október. Combs var í september á síðasta ári ákærður í fimm ákæruliðum fyrir mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fólksflutninga í tengslum við vændisstarfsemi. Þann 2. júlí var Diddy sýknaður í þremur ákæruliðum en sakfelldur í tveimur liðum fyrir að flytja fólk til vændiskaupenda. Dómari hefur hafnað því að verða við kröfu tónlistarmannsins um að verða sleppt gegn fimmtíu milljóna dala tryggingu. Hinn 55 ára gamli Combs hefur dúsað í fangelsi allt frá því hann var ákærður í fyrra. Tónlistarmaðurinn segist breyttur maður, fullur iðrunar og eftirsjár. Saksóknarar hafa farið fram á að honum verði gert að sæta ellefu ára fangelsisvist. Verjendur hans hafa farið fram á að hann siti ekki lengur en í fjórtán mánuði í fangelsi. Þeir segja hann þegar hafa þurft að dúsa inni í þrettán mánuði og fullyrða að hann hafi breyst mikið þar sem hann situr nú inni í fangelsi í Brooklyn. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna (e. refresh).
Tónlistarmaðurinn hefur verið sakfelldur í tveimur ákæruliðum af fimm og mun dómari kveða upp refsingu næstkomandi föstudag 3. október. Combs var í september á síðasta ári ákærður í fimm ákæruliðum fyrir mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fólksflutninga í tengslum við vændisstarfsemi. Þann 2. júlí var Diddy sýknaður í þremur ákæruliðum en sakfelldur í tveimur liðum fyrir að flytja fólk til vændiskaupenda. Dómari hefur hafnað því að verða við kröfu tónlistarmannsins um að verða sleppt gegn fimmtíu milljóna dala tryggingu. Hinn 55 ára gamli Combs hefur dúsað í fangelsi allt frá því hann var ákærður í fyrra. Tónlistarmaðurinn segist breyttur maður, fullur iðrunar og eftirsjár. Saksóknarar hafa farið fram á að honum verði gert að sæta ellefu ára fangelsisvist. Verjendur hans hafa farið fram á að hann siti ekki lengur en í fjórtán mánuði í fangelsi. Þeir segja hann þegar hafa þurft að dúsa inni í þrettán mánuði og fullyrða að hann hafi breyst mikið þar sem hann situr nú inni í fangelsi í Brooklyn. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna (e. refresh).
Mál Sean „Diddy“ Combs Hollywood Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Erlent Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Innlent Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Innlent Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Innlent Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Erlent Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Innlent Vann á öllum deildum leikskólans Innlent Hamasliðar tilbúnir að sleppa gíslum og láta völd af hendi Erlent Rekja andlát dóttur að hluta til samsæriskenninga móður Erlent Fleiri fréttir Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Hamasliðar tilbúnir að sleppa gíslum og láta völd af hendi Hótar helvíti á jörð samþykki Hamas ekki tillögurnar Vísa frá máli á hendur skipverjum sem voru taldir hafa slitið sæstrengi „Það vill enginn spila eftir reglum sem eru samdar annars staðar“ Rekja andlát dóttur að hluta til samsæriskenninga móður Fyrsta konan sem verður erkibiskupinn af Kantaraborg Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Einn hinna látnu skotinn af lögreglu og annar særður Finna mikla nálykt frá rústunum Bein útsending: Siglt áleiðis til Gasa Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Hamas liðar vilja ekki afvopnast Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Nafngreina árásarmanninn í Manchester Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Afganir fagna því að vera aftur komnir í samband við umheiminn Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Sjá meira