Viðskipti innlent

Far­gjöld ekki hækkuð af á­settu ráði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Vilhelm

Forsvarsmenn Icelandair eiga í samtali við stjórnvöld um mögulega aðkomu félagsins að því að bjarga strandaglópum sem sitja fastir erlendis vegna gjaldþrots Play. Forstjóri Icelandair segir samtalið á frumstigi, engar ákvarðanir hafi verið teknar.

„Okkar fyrstu viðbrögð eru náttúrulega þau að við finnum til með farþegum og starfsfólki Play og þeim sem sitja núna fastir að reyna að finna út úr sínum ferðaplönum,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair í samtali við Vísi. Óljóst sé hvort félagið muni eiga aðkomu að því að aðstoða strandaglópa.

„Við erum náttúrulega með umfangsmikla flugáætlun í gangi og næstu dagar eru mjög bókaðir og lítið af lausum sætum. Við erum í samtali við stjórnvöld núna, við erum með varavélar sem við gætum nýtt en þetta er atburður sem er nýskeður. Við ræðum það nú við stjórnvöld hvað sé hægt að gera, það samtal er nýhafið og við þurfum að sjá hvernig þetta þróast.“

Hækkanir ráðist af fjölda sæta

Fréttastofu hefur borist ábendingar frá farþegum sem telja að miðar með Icelandair hafi hækkað mikið í dag eftir að fréttir bárust af falli Play. Bogi segir að almennt hafi fyrirtækið ekki gripið til verðhækkana eftir nýjustu tíðindin.

„En eins og ég nefndi áðan er mjög lítið af sætum laus hjá okkur almennt næstu daga. Í flugrekstri er það þannig að síðustu sætin eru á hæsta verðinu. Þau hafa selst mjög hratt og áætlunin okkar er ekki eins stór núna eins og hún var í byrjun september, það er mjög mikið bókað og það var staðan fyrir þessar fréttir. Það er það sem hefur áhrif á verðlagningu.“

Hann segir fall Play ekki breyta því að Icelandair sé í gríðarlegri samkeppni. Til og frá Íslands fljúgi tuttugu flugfélög frá Evrópu og þó nokkur frá Norður-Ameríku. Virði hlutabréfa í félaginu hefur rokið upp eftir tíðindin af falli Play.

„Þetta verður áfram mjög krefjandi samkeppni sem við verðum í og að reka lítið flugfélag frá Íslandi verður áfram krefjandi, í þessu verðbólguumhverfi, með þessum launahækkunum og með þessari stærðarhagkvæmni. Við verðum að halda áfram að vera á tánum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×