Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. september 2025 22:45 Piero Hincapié fagnar eftir að Enner Valencia skoraði sigurmark Ekvador gegn Argentínu í Suður-Ameríkuriðlinum í undankeppni HM 2026. getty/Franklin Jacome Þrátt fyrir að skora aðeins fjórtán mörk í átján leikjum og þrjú stig hafi verið dregin af liðinu flaug Ekvador örugglega inn á HM 2026.
Ekvador tryggði sér 2. sætið í Suður-Ameríkuriðlinum með því að vinna heimsmeistara Argentínu, 1-0, í gær. Gamla brýnið Enner Valencia skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Ekvador skoraði einungis fjórtán mörk í leikjunum átján í Suður-Ameríkuriðlinum en samt sem áður var Argentína eina liðið sem náði í fleiri stig. Ekvadorska vörnin var gríðarlega öflug í undankeppninni og liðið hélt þrettán sinnum hreinu í leikjunum átján. Ekvador fékk aldrei meira en eitt mark á sig í leik. Einu tveir leikirnir sem Ekvador tapaði voru gegn Argentínu og Brasilíu á útivelli. Ekvador vann átta leiki og gerði átta jafntefli, öll markalaus. Ekvadorar fengu 29 stig en þrjú stig voru dregin af þeim fyrir að falsa fæðingarvottorð Byrons Castillo í síðustu undankeppni. Ekvador hefur haldið hreinu í síðustu fimm leikjum sínum og aðeins fengið á sig eitt mark í síðustu ellefu leikjum. Argentína, Ekvador, Kólumbía, Úrúgvæ, Brasilía og Paragvæ eru komin á HM á næsta ári en Bólivía fer í umspil. Ekvador hefur fjórum sinnum áður komist á HM, öll skiptin á þessari öld. Liðið komst í sextán liða úrslit á HM 2006 en féll úr leik í riðlakeppninni á HM 2002, 2014 og 2022.
HM 2026 í fótbolta Ekvador Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Sjá meira