Það sem gerist þegar formúlur og fordómar hafa of mikil áhrif Matthildur Björnsdóttir skrifar 1. september 2025 18:00 Og sár níðs og andlegs ofbeldis eru tjáð án vitna Vegna flækju hinna fjölbreyttu tilfinninga og reynslu En fína stöðugildið er til sýnis Nú má tjá sig um slíkt og hér eru dæmi um ráðríki þessara viðhorfa Og reynsla sem væri upplifun margra í gegn um tímana. Og það ekki síst þegar einstaklingum var bannað að deila erfiðri reynslu með öðrum. Það þá séð, sem verra en það sem þau höfðu upplifað, og þeim verið gert. Hvort sem það var ætlað eða óunnin vandræði úr undirvitund geranda, sem voru og eru endalaust færð yfir í svekkelsi. Ég hef áttað mig á að slíkt hefur gerst og gerist. Og ég er að upplifa án þess að nein gagnleg svör né lausn í tungumáli eða skilningi sé til. Hver mannvera hefur greinilega sína eigin innri upplifun og tengir ekki endilega við reynslu þess næsta í röðinni. Staða sem þá sundrar æ meira í blóðtengingum. Einlægni um eigið líf í þolendum frá fyrri kynslóð er ógerleg vegna viðhorfa um að slíkt væri séð sem þjóðarsvik. Með þeim afleiðingum og útkomu að þá rúllar bolti þöggunar og yfirborðsmennsku niður línuna í næstu kynslóð og kynslóðir. Það er að segja: Ef ekki er hægt að finna gagnlegar tjáskiptaleiðir. Þá eins og Thomas Hubl og ótal aðrir fræðingar vita í dag enduðu erfiðu tilfinningarnar í kássu í taugakerfum þeirra. Þær urðu og verða að byrði sem eiga það til að skapa sérkennileg þyngsli og erfiða hegðun í einstaklingum. Þessi atriði gerðust hugsanlega meira hjá millistétt þegar óttinn um slúður var mikill sem myndi kosta tap á virðingu. Á hinn veginn heyrði ég líka. Að það voru til einstaklingar á landinu á þeim tímum sem fóru sína eigin leið, og létu hvorki þröngsýni presta né snobb hafa áhrif á ákvarðanir sínar. Afleiðing kúgunar og menguð taugakerfi eru slæm uppskrift Sem er bara eitt dæmi um grunn ástæður skorts á mögulegri einlægni um eigið sjálf og tilfinningar í einstaklingum. Það geta verið tegundir slæmrar reynslu sem gerðust ekki með að neinn væri laminn heldur með allskonar hegðun frá eigin skammti af reynslu af mismeðferð sem fer sem mengun inn í líkamann frá kröfu um þöggun inn sem virkar auðvitað á mismunandi hátt í mismunandi einstaklingum. Við sjáum þó sem betur fer í dag, að nú er yngri kynslóðin að setja þá mengun út. Og grein á Morgunblaðinu um ofbeldi barna á foreldrum 27. Ágúst 2025 er að sýna það. Ástæðan hugsanlega vegna rótgróinnar venju þöggunar í foreldrum um sínar erfiðu tilfinningar. Andlegu ofbeldi af ýmsu tagi sem hefur lamað hjörtun að einhverju leyti. Og fréttir eru um að slíkt sé enn að gerast hér og þar í heiminum. Einstaklingar með háskóla eða annað langtíma nám sem hefur sett þau upp með næga peninga til að skapa fallegt heimili, og oft líka fín fyrirtæki og stofnun. Það er allt yfirborð. Það voru áratugir þegar einstaklingum á Íslandi og ábyggilega víðar í heiminum var bannað að deila sárum sínum með öðrum. Og sátu þá vansæl með útkomuna. Tilgangurinn með þeirri skipun var til að halda uppi viðurkenndri hegðun í þeim með slíkar stöður. Ósorteruð sár og sögur sitja þá í líkömum. Og alla vega sumir þolendur myndu ekki geta lifað við þann innri pirring sem er að kurra og sjóða á ýmsum hitastigum þarna inni í þeim, án þess að færa það ástand inn í aðra. Sögur og reynsla frá tilfinningalegum vonbrigðum þess ofbeldis sem ýmis yfirvöld höfðu beitt þau, og þau höfðu enga leið út. Þá verða taugakerfin einskonar óþveginn þvottur sem færist áfram í því sem situr í kerfunum og ferbeint úr þeim taugakerfis ruslagámi eða kássu. Og það án neinnar skoðunar í heilabúi þeirra. Svo að það færist sjálfvirkt beint að á og í afkvæmið. Eða hvern þann annan sem viðkomandi finnur sig þurfa að hella því að og í. Hlassið setur þá líf þess einstaklings sem þær erfiðu tilfinningar eru færðar yfir á, á hliðina að einhverju leyti. Það fer þó eftir því hvort sá einstaklingur finni seinna leið og orð og hlustanda til að vinna úr því sem kom. Slíkar leifar slæmra orða sitjandi eins og grautur í kerfunum frá þöggunarkröfu geta tekið áratugi að fá upp til vinnslu. Þung orka sem á það til að skapa snúnar kringumstæður fyrir komandi kynslóðir. En rétt tjáning léttir á því hlassi. Höfundur hefur verið búsettur lengi í Ástralíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason Skoðun Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Sjá meira
Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius Skoðun
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius Skoðun