Viðskipti innlent

Segir háa stýri­vexti bitna á á­kveðnum hópi og boðar að­hald í fjár­laga­frum­varpi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ákvörðun Seðlabankans um óbreytta stýrivexti vera vonbrigði.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ákvörðun Seðlabankans um óbreytta stýrivexti vera vonbrigði. Vísir/Sigurjón

Fjármálaráðherra boðar meira aðhald í fjármálafrumvarpi en hjá fyrri ríkisstjórnum. Hann segir ákvörðun seðlabanka um að halda stýrivöxtum óbreyttum hafa verið vonbrigði en gefur lítið fyrir gagnrýni formanns Sjálfstæðisflokks, sem segir ríkisstjórnina skorta slagkraft.

Seðlabankinn tilkynnti í morgun að peningastefnunefnd bankans hefði ákveðið að stýrivextir yrðu óbreyttir en þeir standa nú í 7,5%. Þetta er í fyrsta sinn síðan í október á síðasta ári sem vextir lækka ekki og sagði seðlabankastjóri að vextirnir væru að kæla hagkerfið en að það gengi hægar en búist hafði verið við.

„Við erum að sjá meiri verðbólgu í haust en við höfum áður spáð en við erum að gera ráð fyrir að þetta sé tímabundið,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í viðtali eftir fund þar sem ákvörðun nefndarinnar var kynnt.

„Mun sýna meira aðhald heldur en menn hafa séð hjá fyrri ríkisstjórnum“

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ákvörðun seðlabankans vera vonbrigði en fyrirsjáanlega. Húsnæðismálin þurfi að taka sérstaklega föstum tökum og að samkomulag sé til staðar milli ríkisstjórnarflokka þar að lútandi. 

Þá nefndi Daði einnig stöðugleikaregluna sem ríkisstjórnin kynnti í vor og sagði það beinlínis markmið hennar að tryggja að ríkisfjármál séu sjálfbær.

„Fjármálafrumvarpið í haust mun sýna meira aðhald heldur en menn hafa séð hjá fyrri ríkisstjórnum einfaldlega vegna þess að við ætlum okkur að tryggja stöðugleika í verðlagi,“ sagði Daði Már í kvöldfréttum Sýnar.

Segir seðlabankastjóra hafa talað um jákvæð skref ríkisstjórnar

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í pistli á Facebook og sagði hana hvorki hafa slagkraft né plan. Daði Már gefur lítið fyrir orð Guðrúnar og sagði hana betur hafa tekið þátt í að samþykkja góð mál á vorþingi sem sneru að húsnæðismálum.

„Ég vil minna á að seðlabankastjóri tók sérstaklega fram þau jákvæðu skref sem við höfum náð sem er að leysa ýmis stórmál, lækka skuldir ríkisins með uppgjörinu á ÍL-sjóði og sölunni á Íslandsbanka.“

Hann segist munu standa undir kröfum almennings og að það væri sameiginlegt verkefni að tryggja verðstöðugleika.

„Þessir háu stýrivextir bitna mjög ósanngjarnt á sérstaklega mjög ákveðnum hluta samfélagsins, þeim sem hafa nýlega keypt sér húsnæði. Þetta er verkefni sem við munum vinna saman og leysa.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×