Innlent

Funda með for­eldrum barna á Múlaborg á morgun

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Foreldrar barna á Múlaborg hafa verið boðaðir á fund á morgun.
Foreldrar barna á Múlaborg hafa verið boðaðir á fund á morgun. Vísir/Anton Brink

Foreldrar barna, sem eru nemendur á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík, hafa verið boðaðir á fund í skrifstofum borgarinnar í Borgartúni á morgun. 

Hrund Þórisdóttir verkefnastjóri miðlunar hjá Reykjavíkurborg segir í samtali við fréttastofu að ákveðið hafi verið að flýta fjórum upplýsingafundum, sem boðaðir voru á mánudag, og fara þeir fram á morgun. Það er gert að beiðni foreldra um að flýta fundinum.

Foreldrum barna í leikskólanum verður skipt niður í fjóra hópa. Áfram verði unnið mjög ítarlega að því að upplýsa þá um stöðu mála í samráði við lögreglu og barnavernd. Steinn Jóhannsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar segir í samtali við fréttstofu að á fundinum verði starfsfólk Múlaborgar, fulltrúar skóla- og frístundasviðs, lögregla, barnavernd, starfsmenn Barnahúss og starfsfólk velferðarsviðs. 

Jafnframt fá foreldrar barna sem eru útskrifaðir af leikskólanum að sækja fund. Fyrstu fundir fara fram í fyrramálið og gert er ráð fyrir að þeir standi fram eftir degi.

Greint var frá því í gær að leikskólastarfsmaður á Múlaborg hafi verið handtekinn á þriðjudag og úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald daginn eftir vegna gruns um að hann hafi brotið kynferðislega á barni á leikskólanum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur maðurinn játað brotið.

Barnið hafði sjálft leitað til foreldra sinna á þriðjudag, sem gerðu lögreglu viðvart. Til rannsóknar er hvort brotin hafi verið nokkur, hvort brotið hafi verið á fleiri börnum og hvort hluti brotanna sé rafrænn.

Fréttin var uppfærð með ítarlegri upplýsingum klukkan 18:06.


Tengdar fréttir

Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn

Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín af yfirvegun um kynferðisbrot og útskýri fyrir ungum börnum hvað megi og hvað ekki. Hún skilur vel að foreldrum sé brugðið yfir fregnum af því að starfsmaður leikskóla sé grunaður um kynferðisbrot gegn barni.

„Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, furðar sig á því að foreldrum barna á leikskólanum Múlaborg hafi ekki verið boðinn fundur með leikskólastjóra og starfsfólk skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar fyrr en á mánudag um kynferðisbrot sem kom upp á leikskólanum í vikunni. Starfsfólk borgarinnar hefur verið á leikskólanum í dag og mun foreldrum standa til boða að heyra í deildarstjóra um helgina. 

Barnið lét foreldra sína vita af brotinu

Barn, sem varð fyrir meintu kynferðisbroti af hendi starfsmanns á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík, greindi foreldrum sínum sjálft frá atvikinu. Til rannsóknar er hvort brotið hafi verið á fleiri börnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×