Innlent

Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í slátur­hús

Atli Ísleifsson skrifar
Matvælastofnun metur það sem svo að bóndanum hefði átt að vera ljóst að kýrin hafi ekki verið flutningshæf. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Matvælastofnun metur það sem svo að bóndanum hefði átt að vera ljóst að kýrin hafi ekki verið flutningshæf. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty

Matvælastofnun hefur sektað bónda í Norðausturumdæmi um 260 þúsund króna vegna flutnings hans á kú í sláturhús á Akureyri fimm dögum eftir burð. Kýrin drapst á leiðinni í sláturhúsið.

Á vef Matvælastofnunar segir að það hafi verið mat stofnunarinnar að bóndanum hefði átt að vera ljóst að kýrin hafi ekki verið flutningshæf vegna einkenna sem hún sýndi og var því lögð stjórnvaldssekt á bóndann.

Í tilkynningunni á vef Matvælastofnunar eru raktar fjöldi stjórnvaldsákvarðana í dýravelferðarmálum sem teknar voru af stofnuninni í sumar.

Þannig segir að dagsektir að upphæð 10 þúsund krónur hafi verið lagðar á bónda í suðausturumdæmi til að knýja á um úrbætur. „Örmerkingum hrossa, hunda og katta á bænum var ábótavant og hjarðbók fyrir sauðfé óuppfærð. Sjúkdóma- og lyfjaskráningar fyrir sauðfé og hross voru einnig ófullnægjandi og almenn meðferð og umhirða hunda á bænum ekki í lagi.

Stjórnvaldssekt ákvörðuð

Stjórnvaldssekt að upphæð 330.000 kr. var lögð á einstakling í suðvesturumdæmi sem notaði hengingaraðferð við tamningu á folaldi.

Dagsektir lagðar á rekstraraðila hestaleigu

Matvælastofnun stöðvaði rekstur hestaleigu í suðausturumdæmi í apríl vegna brota á dýravelferð en rekstraraðilinn hélt áfram rekstrinum. Dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag voru lagðar á hann til að knýja á um lokun hestaleigunnar og bæta úr velferð hrossanna.

Vörslusvipting á köttum

Kattareigandi í suðvesturumdæmi sviptur tveimur köttum vegna ófullnægjandi dýravelferðar.

Vanrækt að kalla til dýralækni eða aflífa kvígu

Við eftirlit hjá bónda í suðvesturumdæmi fannst fótbrotin kvíga í fjárhúshlöðu á bænum sem hafði verið brotin í 2-3 daga áður en eftirlitsmenn bar að garði. Ekki hafði verið kallaður til dýralæknir. Kvígan var aflífuð að kröfu MAST og lögð stjórnvaldssekt á bóndann að upphæð 210.000 kr. Einnig voru lagðar á hann dagsektir að upphæð 15.000 kr. á dag til að knýja á um bætta dýravelferð í búskapnum.

Vörslusvipting á köttum

Kattareigandi í suðvesturumdæmi hélt þrjá ketti í búri á svölum á heimili sínu við ófullnægjandi aðstæður. Vörslusvipting fór fram,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að við eftirlit hjá bónda í norðvesturumdæmi hafi komið í ljós í fjósi mjög illa farin kýr.

„Vanrækt hafði verið að kalla til dýralækni eða aflífa skepnuna. Skepnan var aflífuð að kröfu MAST. Lögð var stjórnvaldssekt að upphæð 225.000 kr. á bóndann.

Vörslusvipting á hundi

Hundeigandi í norðausturumdæmi var sviptur umráðum hundsins en vanrækt hafði verið að fara með hann til dýralæknis sem bitnaði á velferð hans. Hundurinn var aflífaður að kröfu MAST.

Vörslusvipting á hundi og köttum

Við heimsókn lögreglu á heimili í suðvesturumdæmi kom í ljós að ástandið þar var ekki gæludýrum bjóðandi. Lögreglan fjarlægði dýrin í samráði við MAST. Formleg vörslusvipting fylgdi í kjölfarið.

Vörlsluvipting á hundi

Hundeigandi í norðausturumdæmi var sviptur vörslum dýrsins. Eigandinn hafði verið fjarverandi í fjóra daga án þess að sjá til þess að hundurinn fengi umönnun, fóður og vatn. Nágrannar brugðust óbeðnir við og sinntu hundinum en ástandið á heimilinu var metið óviðunandi.

Dagsektir ákvarðaðar

Dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag lagðar á bónda í norðausturumdæmi til að knýja á um úrbætur á velferð sauðfjár og hrossa,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×