Körfubolti

Segir að þeim besta í heimi sé skít­sama

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nikola Jokic er frábær í körfubolta en ástríða hans virðist þó vera annars staðar.
Nikola Jokic er frábær í körfubolta en ástríða hans virðist þó vera annars staðar. Getty/Joshua Gateley

Myndir af körfuboltastjörnunni Nikola Jokic að missa sig yfir því þegar hesturinn hans vann keppni í Serbíu fór á flug á netinu í vikunni og ekki síst í samanburði við látlaus viðbrögð hans þegar Jokic varð sjálfur NBA-meistari.

Jokic grét að gleði, faðmaði bæði hest og knapa og fagnaði þessu eins og stærsta sigri ferilsins. Þegar hann varð NBA meistari þá lét hann bara eins og þetta væri hver annar körfuboltaleikur.

Jokic er að mörgum talinn vera besti körfuboltamaður heims í dag en á síðustu leiktíð í NBA þá var hann með þrennu að meðaltali í leik, skoraði 29,6 stig, tók 12,7 fráköst og gaf 10,2 stoðsendingar. Hann er stórskotlegur leikmaður og hefur verið þrisvar sinnum valinn mikilvægasti leikmaðurinn í NBA.

DeMarcus Cousins er fyrrum liðsfélagi Jokic hjá Denver Nuggets og hann segir sláandi hluti um serbneska miðherjann í nýju viðtali. Samkvæmt Cousins þá skiptir körfuboltinn Serbann frekar litlu máli.

„Honum er hreinlega skítsama um körfuboltann í NBA. Þetta skiptir hann engu máli,“ sagði DeMarcus Cousins.

„Að spila í NBA er líklega í þriðja eða fjórða sætið yfir það sem honum þykir skemmtilegast að gera. Það er kannski það sem er mest ógnvekjandi við hans frammistöðu inn á vellinum,“ sagði Cousins.

„Þegar ég var í Denver þá sátum við hlið við hlið í klefanum. Ég fór að ræða við hann um nýjan samninginn hans og hann sagði mér: Heyrðu, ég gæti mögulega bara lagt skóna á hilluna. Ég svaraði: Gefa frá þér þrjú hundruð milljón dollara? Skrifaðu bara undir og safnaðu síðan spiki. Ekki sleppa þrjú hundruð milljónum,“ sagði Cousins.

„Hann svaraði: Ég vil bara komast heim í dalinn minn og vera í kringum hestana mína. Ég svaraði á móti: Jok, hestarnir verða þarna áfram, náðu í þessar þrjú hundruð milljónir,“ sagði Cousins.

Jokic skrifaði undir nýjan samning í júli 2022 sem færir honum 264 milljónir á fimm árum. Hann hefur þegar unnið sér inn 247 milljónir dollara á ferlinum en fær meira 55 milljónir dollara á tímabili þar til að samningurinn rennur út árið 2028. 55 milljónir dollara eru 6,8 milljarðar króna.

Jokic fær 55 milljónir á næsta tímabili, 59 milljónir dollara 2026-27 og næstum því 63 milljónir Bandaríkjadala 2027-28. Hann þarf að mæta í vinnuna eins og við hin en flestir héldu þó eflaust að þetta skipti hann meira máli en það gerir.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×