„Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 18. júlí 2025 08:05 Freyr Ólafsson er nýr framkvæmdastjóri Parka. Hann segir starfsmenn fyrirtækisins leggja sig fram við að koma til móts við notendur bílastæða í umsjá fyrirtækisins. Nýr framkvæmdastjóri bílastæðafyrirtækisins Parka segir fyrirtækið ekki í stríði við neytendur. Ábendingar í úrskurði Neytendastofu í síðasta mánuði hafi verið mikilvægar og starfsmenn séu allir af vilja gerðir til að gera þjónustu Parka sem þægilegasta fyrir neytendur.
Bílastæðamálin hafa verið áberandi í neytendaumræðunni síðustu misseri. Neytendastofa sektaði fjögur bílastæðafyrirtæki í síðasta mánuði fyrir brot gegn lögum um góða viðskiptahætti og reglum um verðmerkingar. Parka lausnir ehf. fékk hæstu sektina, eina milljón króna. Í góðu samtali við Neytendasamtökin Neytendasamtökin hafa í leiðinni kallað eftir nýjum lögum eða reglugerð í málaflokknum. Breki Karlsson formaður samtakanna hefur líkt ástandinu við villta vestrið. Neytendur hafa kvartað undan háum bílastæðagjöldum, svokölluðum vangreiðslugjöldum og erfiðleikum í samskiptum við fyrirtækin. Freyr Ólafsson er nýr framkvæmdastjóri Parka en vika er síðan hann tók við starfinu. Í samtali við fréttastofu segir hann sekt Neytendastofu hafa átt rétt á sér og fyrirtækið leggi sig fram við að bæta það sem betur megi fara. „Við erum alls ekki í nokkru stríði og þarna komu mjög góðar og þarfar ábendingar fram frá Neytendastofu. Og við erum í góðu samtali við Neytendasamtökin og viljum reyna að einfalda þetta. Við erum ungt íslenskt fyrirtæki og ef við lögum ekki og betrumbætum þá fara neytendur annað. Þeir eru okkur allt og við stöndum með þeim,“ segir Freyr í samtali við fréttastofu. Ákveða ekki hvað kostar að leggja Athygli vakti í síðustu viku þegar kona var rukkuð um 48 þúsund krónur eftir að sonur hennar gleymdi að skrá sig úr bílastæði á gjaldsvæði P1 eftir að hafa verið í stæðinu í um fimmtán mínútur. Móðirin, Ásdís Bjarnadóttir, lýsti erfiðum samskiptum við Parka og sagði hafa gengið brösuglega að ná sambandi við fyrirtækið. Hún staðfesti í samtali við fréttastofu á mánudag að fyrirtækið hafi endurgreitt henni gjaldið. Freyr harmar frásögn hennar og segist feginn að málið hafi endað vel. Hann segir að misskilnings virðist gæta um nokkur atriði tengd starfsemi Parka, og fyrirtækið sé gjarnan haft fyrir rangri sök. Í grunninn séu það eigendur bílastæðanna sem ákveði hverjar reglurnar um gjaldtöku og verðskrá séu. Parka eigi til að mynda engin bílastæði, heldur sé hlutverk fyrirtækisins að sjá til þess að reglunum, sem eigendur bílastæðanna setja, sé framfylgt. „Það eru bílastæðaeigendur sem ákveða verðin og við erum að gera okkar besta við að gera þetta eins þægilegt og auðvelt og hægt er,“ segir Freyr. Þar af leiðandi sé það ekki í höndum Parka að ákveða hvort notendur sem til dæmis gleyma að skrá sig úr stæðum fái mistökin endurgreidd eða ekki. „Þetta er yfirleitt þannig að ef þú sendir og sýnir að þú hafir gert eitthvað vitlaust er það leiðrétt eftir bestu getu.“ Fréttastofu hafa borist ábendingar frá bæði Neytendasamtökunum og neytendum um að erfitt sé að ná sambandi við bílastæðafyrirtækin, þar á meðal Parka, þegar leiðrétta þurfi mistök við gjaldtöku. Freyr segir Parka ekki græða neitt á að erfitt sé að ná í fyrirtækið. „Við erum bara eins og öll önnur fyrirtæki í þjónustu. Við eigum allt okkar undir að bregðast sem hraðast og best við. Við erum að mæla okkar svörunartíma og viðbrögð þannig að ef eitthvað vantar upp á þar erum við alla daga í því að reyna að gera betur.“ Skiljanlegt að eigendur vilji aðgangsstýra Loks segist Freyr sýna því mikinn skilning að eigendur bílastæða kjósi að rukka þá sem leggja í þau, það geti skipt höfuðmáli í því hvort rekstur gangi upp eða ekki, hvort bílastæði séu aðgengileg við fyrirtæki eða þjónustu. „Það er oft verið að koma með stórar yfirlýsingar um að fólk sé að taka peninga af notendum og gestum. Það er alltaf einhver ástæða fyrir því. Sumir eru til dæmis með fá bílastæði og eru með einhverja þjónustu og vilja endilega að þeirra raunverulegu viðskiptavinir komist að.“ Eigendur bílastæða séu til að mynda í mörgum tilfellum að sjá til þess að starfsfólk síns fyrirtækis eða fólk sem mæti á staðinn í viðkomandi erindagjörðum sé ekki rukkað, heldur einungis þeir sem ætli að nýta sér stæðin án þess að eiga þangað erindi. „Það er fólk sem fer úr límingunum að úthrópa þetta fólk sem er að reyna að stjórna aðgengi að sínum stæðum, sem er bara að reyna að vera í góðum bissness og gera vel við sína viðskiptavini,“ segir Freyr.
Bílastæði Neytendur Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira