Innlent

Á­rásar­maðurinn ölvaður Ís­lendingur

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Farþegi rútunnar réðist á ökumanninn á N1 á Hringbraut og var síðan handtekinn. Myndin af rútunni vinstra megin er úr safni og ekki liggur fyrir frá hvaða rútufyrirtæki rútan er.
Farþegi rútunnar réðist á ökumanninn á N1 á Hringbraut og var síðan handtekinn. Myndin af rútunni vinstra megin er úr safni og ekki liggur fyrir frá hvaða rútufyrirtæki rútan er. Vísir/Egill

Maður sem réðist á rútubílstjóra í miðborg Reykjavíkur um miðnætti í nótt er Íslendingur og var farþegi rútunnar. Aðrir farþegar héldu manninum, sem var orðinn ölvaður, niðri þar til lögregla kom á vettvang og handtók hann. Rútubílstjórinn var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar.

Árni Friðleifsson, aðstoðayfirlögreglustjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, greindi frá þessu í samtali við Vísi en fjallað var um árásina í morgun.

Atvikið átti sér stað á miðnætti við bensínstöð N1 á Hringbraut. Ekki liggur fyrir á hvaða ferðalagi rútan var eða frá hvaða fyrirtæki en lögregla staðfesti að ekki var um flugrútu að ræða.

Einn farþeganna var þá orðinn ölvaður og veittist að ökumanni. Aðrir farþegar um borð hringdu þá á lögregluna og héldu árásarmanninum niðri þar til lögreglan kom á vettvang og handtók manninn. Rútubílstjórinn var fluttur á bráðamóttökuna til aðhlynningar.

Árásarmaðurinn sem er Íslendingur var færður í fangaklefa og þar látið renna af honum. Skýrsla var síðan tekin af viðkomandi í morgun.

Veistu meira um málið? Áttu myndir frá vettvangi? Sendu ábendingu á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×