Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson skrifar 26. júní 2025 10:34 Það vakti mikla athygli þegar íslenska kvennalandsliðið í handbolta faldi merki Rapyd á landsliðsbúningnum í myndatöku. Með þessu tjáðu stelpurnar okkar þá andúð sem við höfum flest á þessu ísraelska fyrirtæki sem styður stríðið á Gaza. Í framhaldinu sagði ný stjórn HSÍ upp samningi sambandsins við Rapyd og þvoði þennan smánarblett af íslenskum handbolta. Stuðningur Rapyd við hryllinginn á Gaza er flestum Íslendingum ógeðfelld og samkvæmt skoðanakönnun vill mikill meirihluti þjóðarinnar ekki eiga nein viðskipti við fyrirtæki eða stofnanir sem nota Rapyd. Söguleg sniðganga Þessi sniðgangan á Rapyd er söguleg því aldrei áður hefur svo stór hluti Íslendinga tekið þátt í sniðgöngu. Það er ekki bara þessi mikli fjöldi fólks sem tekur beinan þátt í sniðgöngu fyrirtækja sem nota Rapyd og senda þeim pósta með hvatningu um að skipta, heldur er sannfæringin óvenju heit fyrir þeirri siðferðilegu afstöðu að vilja ekki eiga viðskipti við fyrirtæki sem styður það sem okkur finnst vera þjóðarmorð. Fyrirtæki og stofnanir hafa í hundraðavís hætt viðskiptum við Rapyd. Samkvæmt hirdir.is, þar sem fólk getur skráð upplýsingar um slíkt, eru núna 450 stofnanir og fyrirtæki á Íslandi búin að skipta eða eru að því. Rapyd hefur brugðist við sniðgöngunni með því að fela merki fyrirtækisins á posum til að fela sig og blekkja neytendur sem sýnir vel siðferðið á þeim bænum. Það er með ólíkindum að Rapyd komist upp með svo óheiðarlega viðskiptahætti. Neytendum eiga rétt á að fá upplýsingar um hvaða fyrirtæki höndlar með fjármuni þeirra. Rapyd er alveg sama Þrátt fyrir þennan fjöldaflótta íslenskra fyrirtækja og stofnana frá Rapyd Europe, sem er nafn íslenska útibúsins, gengur fyrirtækið vel. Samkvæmt ársreikningi síðasta árs hagnaðist útibúið hér á landi um þrjá milljarða króna svo ekki þarf að hafa áhyggjur af afkomu þess. Forstjóri Rapyd viðurkenndi í viðtali fyrir skömmu að fyrirtækið hefði tapað verulegum fjárhæðum vegna þessarar sniðgöngu sem hann sagði að hefði kostað Rapyd 2 - 2.5 milljarða króna. En hann sagði líka að honum væri alveg sama þótt fyrirtæki hættu viðskiptum við Rapyd vegna afstöðu fyrirtækisins - þau skildu bara fara annað. Sveitarfélögin Það er gaman að sjá á hirdir.is hvaða fyrirtæki hafa staðið með almennngsálitinu á Íslandi og fróðlegt að sjá þau sem hafa kosið að gera það ekki. Akureyrarbær hætti nýlega viðskiptum við Rapyd eins og til dæmis Reykjanesbær og Þingvallasveit hafa gert. Reykjavíkurborg, Mosfellsbær, Akranes og Stykkishólmur eru ekki með Rapyd frekar en flest sveitarfélög landsins. Ennþá eru nokkur sveitarfélög sem kjósa að skipta frekar við þetta ísrelska fyrirtæki en íslenska aðila. Meðal þeirra eru til dæmis Vestmanneyjar, Eyjafjarðarsveit, Bláskógarbyggð, Skagafjörður, Norðurþing, Seltjarnarnes, Hveragerði, Fjarðarbyggð og Kópavogur. Hafnarfjörður hefur beinlínis samþykkt að halda áfram með Rapyd því fyrirtækið er þar í bænum. Rósa Guðbjartsdóttir fyrrverandi bæjarstjóri sagði við þær umræður að ósannað væri að Rapyd taki þátt í hryllingnum á Gaza þótt fjölmiðlar í Ísrael hafi flutt þær fréttir og Rapyd ekki borið þær til baka. Sagan fer ekki mjúkum höndum um þá sem ekkert þótttust sjá eða vita - þegar allir sjá og vita. Við ættum að sameinast um að hvetja sveitarfélög til að skipta um færsluhirði því þótt við séum ekki íbúar þar þurfum við að borga Rapyd ef við til dæmis förum í sund í þessum sveitarfélögum. Á hirdir.is eru netföng þessara sveitarfélaga ef fólk vill senda þeim hvatningu um að skipta um færsluhirði. Verslanir Það sama gildir um þau fyrirtæki sem ennþá nota Rapyd. Þau þurfa hvatningu frá viðskiptavinum sínum og netföngin má finna á hirdir.is. Mörg okkar kjósa að sniðganga alfarið þessi fyrirtæki og skipta frekar við samkeppnisaðila sem ekki nota Rapyd. Samkvæmt ársgamalli könnun erum við 60% allra neytenda svo við höfum mikil áhrif. Hér eru nokkur af þeim fyrirtækjum í verslunarrekstri sem hafa hætt með Rapyd á síðustu misserum: Krónan, Hagkaup, Bónus, 10-11, Elko, Lyf og heilsa, Lyfja, Jysk, IKEA, Vínbúðirnar, Samkaup, Krambúðin, Björnsbakarí, Akureyrarapótek, Geirabakarí, Borgarapótek, Garðsapótek, Garðheimar, Húrra Reykjavík, Farmers market, Vero moda, Jack & Jones, Zara, NTC búðirnar, Epal, Eirberg, Michelsen, A4, Epli, Kokka, Útilíf, Rafha, Nexus, Fönix og Penninn/Eymundson. En þessar verslanir nota ennþá Rapyd: Fjarðarkaup, Húsasmiðjan, Flugger, Danfoss, Rafvörumarkaðurinn, Rafkaup, Parki, Blómaval, Byggt og búið, H&M, Fiskikóngurinn, Netverslun S4S, Sports Direct, Kaupfélagið, Skór.is, Ecco, Englabörnin, Polarn o pyret, Misty, Nike búðin, Herragarðurinn, og Ellingsen. Matstaðir Meðal matstaða sem eru hættir með Rapyd eru: KFC, Kaffitár, Nespresso, Dominos, Pizzan, Grillmarkaðuinn, Apótekið, Subway, Apótekarinn, Slippfélagið, Aktu taktu, Omnom, Kaffibrennslan, Nýja vínbúðin, American style, Kaffi vest, Mosfellsbakarí, Ísbúðin Garðabæ, Tapasbarinn, Greifinn, Hraðlestin, Lemon, Deig, Nauthóll, Ísbíllinn og Hamborgarafabrikkan. Þessir matstaðir eru hinsvegar með Rapyd: Devitos Pizza, Hlöllabátar Ingólfstorgi, Slippbarinn, Café Mílanó, Cafe Rosenberg, Matkráin í Hveragerði, Bæjarins bestu, Matstöðin Höfðabakka, Sólon Íslandus, Sbarro, Ísbúð vesturbæjar, Baulan Borgarfirði, Ísbúðin Akureyri og Joe and the juice. Fyrirtæki Af öðrum fyrirtækjum sem eru hætt viðskiptum við Rapyd má nefna: Sýn, Icelandair, Strætó, Veitur, DAS, Borgarleikhúsið, World class, Smárabíó, Tix.is, Rekstrarvörur, BM Vallá, ILVA, Storytel, Sinfóníuhljómsveitin, Harpa, Krabbameinsfélagið, Center hótels, Isavía, Hekla, Parka, Easy park, N1, Orkuveita Reykjavíkur, Straumlind, Orka náttúrunnar og Sky lagoon. En þessi fyrirtæki skipta ennþá við Rapyd þrátt fyrir skýran vilja meirihluta þjóðarinnar: Síminn, Þjóðleikhúsið, Íslensk Getspá, ÓB bensín, Orkan, Atlantsolía, Löður, Íslensk Getspá, Hilton Nordica Hotel, Hertz bílaleiga, Bílaleiga Akureyrar, Herjólfur, Sæferðir, Hótel Akureyri, Perlan, Frumherji, Nesdekk, Bílaverkstæði Högna, Carpark, Smurstöðin Klöpp, HS Orka - hleðslustöðvar, Stilling, Advania, Úrval útsýn, Mímir, Röntgen Domus, Samskipti, Lífland, Innnes, Litir og Föndur, Svefn og heilsa, Dún og Fiður, Origo, Háskólabíó, Tölvulistinn, Hreyfill, Sambíóin, Ormsson. Mörg fyrirtæki eru að skipta Fjöldi fyrirtæka eru núna að vinna í að skipta frá Rapyd. Meðal þeirra eru: Pósturinn, Olís, Hagar, DHL, Hleðslustöðvar N1, Heimsferðir, Umbúðagerðin, Sindri, Happdrætti Háskólans, Lyfjaver, Fagkaup, Sveitarfélagið Skagaströnd, Kaldrananeshreppur, Dalvíkurbyggð, Breiðholtsblóm, Brokk, Dekkjahöllin, Ökuland, Blá kannan, Sjúkraþjálfun Íslands, Jökulsárlón, Bílatorgið Akureyri, Raufarhólshellir, Klifurhúsið, Yoyo ís, Ilse Jakobsen, Skógarböðin, Barnaloppan, Kaffi dalur, VR stéttarfélag, Serrano, Fiskó, Jens skartgripaverslun, A Hansen, Ölver, SOS Barnaþorpin, As We Grow, Kaffi kyrrð, Óskaskrín, Pixel, Legó búðin, Jóhann Rönning, Múrbúðin, Nespresso og Kaffitár. Samviska okkar Við fögnum öllum þeim sem hætta viðskiptum við ísraelska fyrirtækið Rapyd vegna stuðnings þess við þjóðarmorð á Gaza og hvetjum þá aðila sem ekki hafa enn stigið þetta skref að íhuga hvort skynsamlegt sé að skipa sér í hóp þeirra fyrirtækja sem mikill meirihluti þjóðarinnar vill ekki eiga nein viðskipti við af samviskuástæðum. Heimildir: Hér er frétt í ísraelskum fjölmiðli um samvinnu Rapyd við ísrelska herinn í stríðinu á Gaza: https://www.calcalistech.com/ctechnews/article/49azuzhzn. Hér er frétt um fjárhagslegan stuðning Rapyd við samtök sem kaupa útbúnað fyrir ísraelska herinn á Gaza: https://jewishbusinessnews.com/2023/11/08/israel-at-war-ezer-lahayal-war-room-in-kfar-chabad-extends-its-activities/ Hér eru orð stjórnarformanns Rapyd á Íslandi um afstöðu fyrirtækisins til hernaðarins Gaza: https://www.visir.is/g/20232483121d/forstjori-rapyd-vill-eyda-ollum-hamaslidum). Höfundur er áhugamaður um siðferði og samvisku. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Björn B. Björnsson Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Sjá meira