Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 21. júní 2025 20:10 Skák rauk upp i vinsældum meðal ungra og aldinna á meðan heimsfaraldrinum stóð. Vísir/ANTON BRINK Þriðjungur íslensku þjóðarinnar er með reikning á skákforritinu Chess.com samkvæmt gögnum frá fyrirtækinu. Þá eru Íslendingar jafnframt virkustu notendur forritsins og fjórða stigahæsta þjóðin þar inni.
Líkt og segir á heimasíðu hins geysivinsæla skákforrits Chess.com er skák svo sannarlega alþjóðlegur leikur. Fyrirtækið birti í gær tölur þar sem notendur, virkni og stig voru flokkuð eftir þjóðum. Þó er það með þeim fyrirvara að notendur skrá sjálfir hvaða landi þeir eru frá og því gætir líklega einhverrar skekkju. Ísland mesta skákþjóð heims Tölurnar frá Chess.com mála Ísland upp sem líklega mestu skákþjóð heims ef þær má marka. Þeim samkvæmt er 33 prósent þjóðarinnar með reikning á síðunni en 128,503 reikningar eru skráðir íslenskir. Nágrannar okkar á Norðurlöndunum fylgja fast á hælana en fjórðungur Norðmanna er með reikning og sjötti hluti Dana og Svía. Íslendingar og Norðmenn eru jafnframt virkustu skákmenn heimsins en á hverjum degi teflir um eitt prósent þjóðarinnar minnst eina skák á Chess.com í tölvunni eða í smáforritinu í farsíma. Á heimasíðu Chess.com er einnig tekinn fyrir meðalstigafjöldi notenda eftir þjóðum og er þá miðað við hin svokölluðu Elo-stig sem hæfni í skák er mæld eftir í skák og hraðskák og svo meðaltal flokkanna tveggja. Þá kemur í ljós að Ísland er í fjórða sæti með meðalstigafjölda í hraðskák upp á 845 og skák upp á 825. Besta þjóð heims að meðaltali samkvæmt Chess.com eru Seychelle-eyjar og þeim fylgja á eftir Albanía, Svartfjallaland og svo Ísland. Gíneumaðurinn líklegastur til að leika frönsku vörnina Meiri skemmtileg tölfræði kemur einnig fram. Samkvæmt tölum Chess.com er Frakkinn aðeins sá áttundi líklegasti til að leika frönsku vörnina. Gíneumaðurinn er sá líklegasti en það kemur heim og saman við það að opinbert mál þessarar vesturafrísku þjóðar er franska þrátt fyrir umtalsverða fjarlægð frá metrópólinu. Hollendingar eru í tuttugasta sæti yfir þjóðirnar sem líklegastar eru til að leika hollensku vörnina og Englendingar í 26. sæti yfir þjóðirnar sem líklegastir eru til að hefja leik á ensku opnuninni. Þá er Suður-Kórea sú þjóð sem líklegust er til að leika ítalskt.
Skák Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Sjá meira