Innlent

„Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Þau tímamót urðu í dag að þingmenn í minni-  og meirihluta atvinnuveganefndar ,þeir Ólafur Adolfsson Sjálfstæðiflokki og Eiríkur Björn Björgvinsson þingmaður Viðreisnar, voru sammála um tölur sem fram hafa komið varðandi veiðigjaldafrumvarpið.
Þau tímamót urðu í dag að þingmenn í minni- og meirihluta atvinnuveganefndar ,þeir Ólafur Adolfsson Sjálfstæðiflokki og Eiríkur Björn Björgvinsson þingmaður Viðreisnar, voru sammála um tölur sem fram hafa komið varðandi veiðigjaldafrumvarpið. Vísir

Allt stefnir í að met verði slegið í umræðu um veiðigjaldsfrumvarpið á Alþingi sem er þegar sú sjöunda lengsta í sögunni. Framsögumaður málsins í  atvinnuveganefnd segir staðfest að meirihluti nefndarinnar hafi reiknað veiðigjaldið rétt, þvert á það sem minnihlutinn hafi haldið fram.

Þingfundur stóð fram til klukkan rúmlega þrjú í nótt og enn eina ferðina voru þingmenn stjórnarandstöðunnar þeir einu sem ræddu um breytingar á veiðigjöldum. Önnur umræða um veiðigjaldið hófst svo formlega að nýju um klukkan fjögur í dag sjöunda daginn í röð. Umræða um málið er nú þegar orðin um áttatíu og ein klukkustund og er í sjöunda sæti yfir lengstu umræðu um þingmál síðan Alþingi var sameinað í eina málstofu 1991.

Meirihluti atvinnuveganefndar hafi verið með réttar tölur

Þingmenn minnihlutans á Alþingi hafa í vikunni sagt forsendur veiðigjaldafrumvarpsins brostnar því tölur og útreikningar hafi reynst röng. Atvinnuveganefnd fékk ríkisskattstjóra og skrifstofustjóra atvinnuvegaráðuneytisins á fund til sín í morgun til að fá úr þessu skorið. 

Eiríkur Björn Björgvinsson fyrsti varaformaður nefndarinnar,  þingmaður Viðreisnar og framsögumaður málsins segir að í ljós hafi komið að meirihluti nefndarinnar hafi haft rétt fyrir sér, Réttar tölur Skattsins hafi legið fyrir strax frá 10. júní og þær hafi verið kynntar nefndinni 12. júní.

„Það var staðfest á fundi nefndarinnar í dag að þau gögn sem við höfum verið að vinna með og hafa verið lögð fram í nefndaráliti meirihlutans eru réttar tölur. Það leiðir til þess miðað við útreikninga frá 2023 og 2024 að verði frumvarpið að lögum með breytingartillögum meirihlutans verður veiðigjaldið alls 17,7 milljarðar króna,“ segir Eiríkur

Sammála um töluna

Ólafur Adofsson Þingmaður Sjálfstæðisflokks tekur undir það að tölurnar séu réttar en telur enn rétt að vísa málinu frá.

„Þessi fundur í morgun var góður og nefndin er ásátt um að við ætlum að miða við sömu tölu sem er rúmlega 57 krónur á kíló,“ segir Ólafur.

Aðspurður um hvort það þýði 17,7 milljarða í heildarveiðigjöld , svarar Ólafur því játandi. 

Hann segir þó að þetta muni litlu breyta varðandi afstöðu Sjálfstæðisflokksins til frumvarpsins.

„Hún breytist að því leyti að menn eru alla vega að vinna með sömu tölu. En þær miðað við umsagnir sem hafa verið gerðar og upphaflega frumvarpið þá eru áhyggjurnar enn fyrir hendi.  Ég geri fastlega ráð fyrir því að málið verði rætt áfram. Jafnvel um langa hríð ef stjórnarmeirihlutinn tekur ekki sönsum og dregur málið til baka, segir Ólafur“

Í kvöldfréttum Sýnar var missagt að Eiríkur Björn Björgvinsson væri formaður atvinnuveganefndar hið réttar er að hann er fyrsti varaformaður og framsögumaður málsins í nefndinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×