Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Agnar Már Másson skrifar 16. júní 2025 12:42 Þjóðhátíðardeginum verður fagnað með pompi og prakt víða um land þann 17. júní . Vísir/Vilhelm Stórkostleg hátíðardagskrá verður í boði um allt land á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní.
Reykjavík Dagskráin í höfuðborginni er stútfull af spennandi viðburðum. Hún hefst klukkan 11:10 með hátíðlegri athöfn á Austurvelli. Forseti Íslands og forsætisráðherra skiptast á hlutverkum í þetta skipti þar sem öfugt við venju flytur nú hátíðarræðu í stað forsætisráðherra og forsætisráðherra leggur blómsveig að minnisvarða Jón Sigurðssonar í stað forsetans. Fjallkonan flytur svo ávarp og nýstúdentar leggja blómsveig við leiði Jóns og Ingibjargar í Hólavallakirkjugarði að athöfninni lokinni. Skátar leiða þar skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju klukkan 13.00. Í skrúðgöngunni slást leynigestir með í hópinn þeirra á meðal eru allar landvættir Íslands. Lúðrasveitin Svanur leikur undir sér um að slá taktinn. Þá verður hörkudagsskrá um breiða borg sem lesa má um á Vísi eða á www.17juni.is. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu Haldið verður upp á 17. júní með glæsibrag í Kópavogi og er boðið upp á dagskrá á nokkrum stöðum í bænum. Skemmtidagskrá er bæði á Rútstúni og við Versali frá tvö til fjögur en leiktæki og hoppukastalar opna klukkan tólf. Einnig er dagskrá við Menningarhús bæjarins. Dagskráin kl. 10 með hlaupi fjárlsíþróttadeildar Breiðabliks en hátíðarsvæðið opnar kl. 12. Lesa má meira um dagskrána á vef Kópavogs. Það verður mikið fjör í Garðabæ á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Aron Can og Prettyboitjokkó stíga á svið og Eva Ruza og Hjálmar kynna dagskrá fyrir þau yngstu. Klukkan 20 hefst svo tónlistardagskrá í Tónlistarskóla Garðabæjar, þar kemur Sigríður Thorlacius fram ásamt góðum hópi hljóðfæraleikara. Hjarta Hafnarfjarðar tekur einnig kipp á þjóðhátíðardaginn. Una Torfa og Emmsjé Gauti skemmta Hafnfirðingum. Annríki verður auk þess með þjóðbúningasýningu. Svo verður Víkingahátíð á Víðistaðatúni. Á Seltjarnarnesi verður boðið upp á bátasiglingu frá smábátahöfninni og eins og annars staðar er síðan hátíðarguðsþjónusta. Skrúðganga hefst svo frá leikskólanum. Í Mosfellsbæ hefjast leikar klukkan 11 með hátíðarguðsþjónustu í Lágafellskirkju. Klukkan 13:30 verður svo skrúðganga frá Miðbæjartorginu, leidd af Skátafélaginu Mosverjum, sem ganga taktfast að Hlégarði. Þar verður svo fjölbreytt fjölskyldudagskrá frá klukkan 14. Suðurnes Í Reykjanesbæ ár en þar er stærsti fáni landsins dreginn að húni á fánastönginni í skrúðgarðinum í Keflavík. Í ár á þjóðfáninn einmitt 110 ára afmæli. Hátíðardagskrá sem hefst kl. 12 með hátíðarguðþjónustu í Keflavíkurkirkju og skrúðgöngu að henni lokinni í skrúðgarðinn í Keflavík þar sem fram fer fánahylling, setningarræða, ávarp fjallkonu, ræða dagsins og flutningur Lofsöngsins. Að hátíðardagskrá lokinni fer fram skemmtidagskrá fyrir börn og ungmenni. Í Grindavík verður sundlaugin verður opin 17. júní kl. 11:00-17:00. Íþróttaskóli fyrir börn á leikskólaaldri kl. 12:00-12:40. Enginn kostnaður, engin skráning. Starfsfólk sundlaugarinnar tekur vel á móti gestum og býður upp á veitingar með kaffinu í tilefni dagsins. Hátíðarhöld í Suðurnesjabæ hefjast með fánahyllingu við Sandgerðisskóla kl. 13 auk ávarps fjallkonunnar. Þá verða haldnir tónleikar og Sirkus Ísland verða með atriði auk Latabæjar. Suðurland Í Árborg verður nóg í boði fyrir börnin Á Eyrarbakka skemmti Einar Aron töframaður skemmtir, Anna Berglin kennir róa dansinn og auk þess verður lazer-tag í boði fyrir 6 ára og eldri. Á selfossi opna hoppukastalar og loftboltar í Sigtúnsgarði en þar verður helsta hátíðardagskrá bæjarins. Í Hveragerði verður fjölbreytt dagskrá. Skúðganga hefst við Hornið á Heiðmörk og Laufskógum með Skrúðgöngu. Síðan verða veitt menningarverðlaun Hveragerðisbæjar og tónleikar haldnir þar sem GDRN, VÆB og anna úr Frosti stíga á svið. Í Ölfusi sýna BMX-brós listir sínar. Auk þess mæta Júlí og Dísa á svæðið að hadla uppi stemningunni. Vesturland og Vestfirðir Nóg verður um að vera á Akranesi verður samverustund á Akratorgi eð hoppuköstulum, þrautum og karnivalstemningu. Í Snæfelssbæ verður froðufjör með slökkvilðinu og kaffiboð á hóteli flúðum. Einnig verður „shoot out“-golfmót á Fróðavelli. Í Borgarnesi verður frítt í sundlaugina í Borgarnesi. Auk þess verður tilkynnt hver listamanneskja Borgarbyggðar verður. Þá mun Blaðrarinn búa til listaverk úr blöðrum. Á Ísafirði hefst dagskráin með tónlistarmessu. Auk þjóðhátíðardagsins verður haldið upp á 100 ára afmæli safnahússins. Þá verður einnig Grímusmiðja í Edinborgarhúsinu. Hátíðarhöld Vesturbyggðar á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2025 verða á Bíldudal. Þar verður fjölskylduratleikur um miðbæ Bíldudals. Norðurland Í Skagafirði mætir sjálf Hvolpasveitin á svæðið á Árskólalóðinni en þar verður hátíðardagskráin þéttpökkuð eftir kl. 14. Á Akureyri verður götukörfubolti með Körfuknattleiksdeild Þórs við íþróttahús MA. Skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar leggur af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12.30 og heldur suður í Lystigarð þar sem formleg hátíðarhöld fara fram. Í Norðurþingi verður búningadagur í Safnahúsinu þar sem fólk er hvatt til að mæta í þjóbúningum. Þá mun hestamannafélagið Grani bjóða á bak. Þá verða kaffi, kakó og kleinur í boði Norðurþings. Austurland Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur með fjölbreyttri dagskrá í öllum kjörnum Múlaþings. Á Egilsstöðum verður meðal annars móttaka skúlptúra í skúlptúrasamkeppni fyrir börn fædd 2013-2020. Þemað í ár er Lagarfljótsbrúin en 120 ár eru liðin frá því að Lagarfljót var brúað. Á Seyðisfirði verður sýningin Kjarval á Austurlandi opnuð í Skaftfelli. Á Djúpavogi verður hátíðardagskrá í Blá þar sem nóg verður um að vera. Á Borgarfirði verður skrúðganga frá Heiðinni og upp á íþróttavöll þar sem verða leikir og sprell. 17. júní verður fagnað á Breiðdal með frábærri hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin fer fram við Frystihússalinn en þar verður meðal annars markaður.
17. júní Mest lesið Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira