Brady byggir nýjan leikvang fyrir Willum og Alfons Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2025 21:45 NFL goðsögnin Tom Brady hefur sýnt Birmingham verkefninu mikinn áhuga. Willum Þór Willumsson og Alfons Sampsted spila með félaginu sem komst upp í b-deildina í vor. Getty/ Mitchell Leff/Nigel French Íslendingafélagið Birmingham City komst upp í ensku b-deildina í fótbolta í vor og nú ætlar félagið að byggja sér nýjan og glæsilegan leikvang.
Willum Þór Willumsson og Alfons Sampsted spila með félaginu sem er með mjög metnaðarfulla eigendur. Tom Brady, sigursælasti leikmaður NFL frá upphafi, er í eigandahóp enska liðsins en Tom Wagner fer fyrir eigandahópnum. Liðið hefur spilað á hinum 29 þúsund manna St. Andrew’s leikvangi frá árinu 1906 en ekki mikið lengur. Brady og hinir í eigendahópnum ætla nefnilega að byggja nýjan völl fyrir Willum, Alfons og félaga þeirra. Þeir eru búnir að kaupa landsvæði í borginni undir nýjan leikvang og ætla að eyða þremur milljörðum punda í verkefnið eða meira en fimm hundruð milljörðum íslenskra króna. Leikvangurinn verður 62 þúsund manna völlur og líkist helst geimskipi ef marka má þær teikningar sem hafa verið opinberaðar. Birmingham borg ætlar líka að fjárfesta í svæðinu og mun byggja nýja lestaleið frá miðbænum og að nýja leikvanginum. Markmiði er að leikvangurinn verði tilbúinn árið 2029 og þá ætla eigendurnir líka að vera búnir að festa Birmingham liðið í sessi í ensku úrvalsdeildinni. Birmingham hefur ekki spilað í úrvalsdeildinni síðan 2011. View this post on Instagram A post shared by Birmingham City Football Club (@bcfc)
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Fleiri fréttir Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Nottingham Forest - Manchester City | Mæta City-menn þungir til leiks? Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Sjá meira