Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. mars 2025 22:31 Þessi ungi KR-ingur veltir eflaust fyrir sér hvernig KR ætli að spila á Meistaravöllum í sumar. KR Líkt og á síðustu leiktíð munu fyrstu heimaleikir KR í Bestu deild karla í knattspyrnu fara fram í Laugardal. Á síðustu leiktíð endaði KR sömuleiðis mótið í Laugardalnum en nýtt gervigras svarthvítra ætti að koma í veg fyrir það.
Líkt og á síðustu leiktíð munu fyrstu heimaleikir KR í Bestu deild karla í knattspyrnu fara fram í Laugardal. Á síðustu leiktíð endaði KR sömuleiðis mótið í Laugardalnum en nýtt gervigras svarthvítra ætti að koma í veg fyrir það. Eftir að tímabilinu 2024 lauk fór KR-ingar í það að leggja gervigras á aðalvöll sinn að Meistaravöllum. Þeim framkvæmdum verður ekki lokið þegar Besta deild karla fer af stað og því hefur KR leitað á náðir Þróttar Reykjavíkur að fá að hefja leik í Laugardalnum. Í viðtali við íþróttadeild Morgunblaðsins, mbl.is, segir Magnús Orri Schram – formaður knattspyrnudeildar KR – að miðað sé við að fyrsti heimaleikur liðsins á nýju gervigrasi veðri gegn ÍBV þann 10. maí næstkomandi. Framkvæmdir séu í fullum gangi og þeim miði vel áfram. Sem áður segir þá spilaði KR sinn fyrsta „heimaleik“ á síðustu leiktíð í Laugardal. Sá tapaðist 0-1 gegn Fram. Sömuleiðis lauk liðið tímabilinu í Laugardalnum með 7-1 sigri á HK. Það verða engir smá leikir á heimavelli Þróttar í Laugardal en KR fær Val í heimsókn þann 14. apríl og svo ÍA þann 27. apríl. Það verður svo í 6. umferð Bestu deildar þegar KR leikur loks leik á sínum eigin heimavelli. Besta deildin hefst 5. apríl næstkomandi með leik Breiðabliks og Aftureldingar.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla KR Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Óábyrgt að láta leikmenn spila á hættulegum velli Sport Fleiri fréttir Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Sjá meira