Grindvíkingum sem standa illa tryggður frekari stuðningur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. mars 2025 11:05 Eldgos á Grindavíkurvegi fyrir ári síðan. Von er á enn einu eldgosinu hvað úr hverju. Vísir/Vilhelm Ríkistjórnin ákvað á fundi sínum í dag að að halda áfram stuðningsaðgerðum við Grindvíkinga og atvinnurekendur í bænum. Einstaklingar og fjölskyldur í sérstaklega viðkvæmri stöðu munu áfram njóta nauðsynlegs stuðnings. „
Við viljum gefa Grindvíkingum skýr svör um framhald stuðningsaðgerða til að eyða óvissu að því marki sem það er hægt,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í tilkynningu. Hún lagði fram minnisblað um málefni Grindavíkur á ríkisstjórnarfundi ásamt fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, atvinnuvegaráðherra, mennta og barnamálaráðherra og umhverfis-, orku- loftslagsráðherra. Ekki er hvikað frá þeirri stefnu að Grindavík byggist upp að nýju ef náttúran leyfir og það verður talið öruggt. Forsætisráðherra segir ákvarðanir ríkisstjórnarinnar á þessum tímapunkti snúa að stuðningi við einstaklinga og fyrirtæki en að á vormánuðum muni stjórnvöld efna til samráðs um framtíð sveitarfélagsins Grindavíkur og byggðar í bænum. Að undanförnu hefur verið unnið að sviðsmyndagreiningu um framtíð Grindavíkur sem getur orðið grundvöllur að slíku samtali. Forsætisráðherra fundaði með bæjarstjóra Grindavíkur og forseta bæjarstjórnar í gær sem og þingmönnum Suðurkjördæmis þar sem ákvarðanir um næstu skref voru kynntar. Tekju- og eignaminni fjölskyldur fá áfram stuðning Lög um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ (nr. 94/2023) falla úr gildi 31. mars næstkomandi og verða ekki framlengd. Þess í stað verður stutt sérstaklega við tekju- og eignaminni heimili til áramóta á meðan leitað verður varanlegri lausna á húsnæðisvanda þeirra. Framkvæmd úrræðisins verður í höndum þjónustuteymis Grindavíkurnefndar. Aðrir geti sótt um almennar húsnæðisbætur eða sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga. Frestur til að óska eftir uppkaupum á íbúðarhúsnæði í gegnum Þórkötlu verður framlengdur um þrjá mánuði frá 31. mars. Að því loknu verður fresturinn ekki framlengdur á ný. Stuðningslán framlengd en ekki rekstrarstuðningur „Stuðningslán til fyrirtækja verða framlengd um eitt ár, til 1. júní 2026, til að fyrirtæki geti byggt sig aftur upp í Grindavík eða flutt reksturinn ef þess er þörf. Rekstrarstuðningur við rekstraraðila verður hins vegar ekki framlengdur og fellur því úr gildi 31. mars. Í staðinn verður horft til þess að nýta almennari úrræði um opinberan stuðning við atvinnulíf gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja,“ segir í tilkynningunni. Sóknaráætlanir landshluta hafi í gegnum tíðina fengið það hlutverk að styðja við atvinnulíf á einstökum svæðum í tengslum við áföll á borð við snjóflóð eða skriðuföll og í tengslum við heimsfaraldur COVID-19. Gerður verði viðaukasamningur við Sóknaráætlun Suðurnesja um stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík. Ekki ráðist í uppkaup á atvinnuhúsnæði í Grindavík Stjórnvöld ætla ekki að ráðast í uppkaup á atvinnuhúsnæði í Grindavík. Sjónum stjórnvalda verði þess í stað beint að því að greina hvort persónulegar ábyrgðir vegna atvinnuhúsnæðis eða atvinnureksturs kalli á ráðstafanir til að forða gjaldþrotum einstaklinga. Þörf fyrir slík úrræði verði könnuð með milligöngu umboðsmanns skuldara. Forræði á Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur (Grindavíkurnefnd) hefur verið flutt frá innviðaráðuneyti til forsætisráðuneytis með forsetaúrskurði sem tók gildi 15. mars. Breyting verður gerð á skipan nefndarinnar og umfangi starfseminnar um næstu mánaðarmót. Stjórnskipan verður einfölduð og nefndarmönnum í fullu starfi fækkað. „Þjónustuteymi Grindavíkurnefndar hefur gegnt lykilhlutverki í stuðningi við Grindvíkinga síðustu mánuði. Teymið hefur meðal annars sinnt andlegum og félagslegum stuðningi, sem mikilvægt er að hlúa að áfram. Fjármagn verður tryggt fyrir áframhaldandi starfsemi teymisins,“ segir í tilkynningunni. Niðurstöður íbúakönnunar Dagana 20. febrúar til 2. mars sl. gerði Maskína könnun fyrir forsætisráðuneytið meðal þeirra sem búsettir voru í Grindavík við rýmingu 10. nóvember 2023. Markmiðið var að afla upplýsinga m.a. um afdrif, líðan og hug til að flytja aftur til Grindavíkur ef óhætt verður talið að búa þar. Í könnuninni birtist í fyrsta sinn mæling á hug Grindvíkinga til að snúa aftur til bæjarins verði það talið öruggt. Rúmur þriðjungur hefur einhvern hug á að snúa aftur, nærri því jafnmargir segjast ekki vita það og um fjórðungur hefur engin áform þar um. „Þá bendi niðurstöður könnunarinnar jafnframt til þess að úrræði stjórnvalda til að tryggja húsnæðisöryggi og afkomu fólks hafi skilað tilætluðum árangri. Hins vegar þurfi að huga áfram að andlegri líðan og félagslegum aðstæðum fólks,“ segir í tilkynningunni. Framtíð byggðarinnar og íbúaþátttaka Óvissa vegna jarðhræringa við Grindavík er mikil og ekki þykir ráðlegt að hefja stórtækt endurreisnarstarf við núverandi aðstæður. Jarðhræringarnar ógna mikilvægum innviðum á Suðurnesjum öllum. Því verður sjónum stjórnvalda í vaxandi mæli beint að styrkingu á áfallaþoli samfélagsins vegna þeirrar ógnar sem stafar af áframhaldandi jarðhræringum á Reykjanesskaga. Íbúaþátttaka og samtal stjórnvalda við framtíðaríbúa verður hornsteinn endurreisnar byggðar í Grindavík. Á undanförnum vikum hefur ráðgjafarfyrirtækið Deloitte unnið að greiningu á stöðu Grindavíkur og sviðsmyndum um hvernig Grindavík og samfélag Grindvíkinga gæti orðið 2035. Stöðumatið og sviðsmyndirnar verða nýttar við áframhaldandi stefnumótun stjórnvalda sem og til frekara samtals við Grindvíkinga um framtíð byggðarinnar. Undirbúningur að samtali við íbúa og sveitarfélagið Grindavíkurbæ um framtíðaruppbyggingu bæjarins hefst strax og er tíðinda að vænta á vormánuðum um fyrirkomulag þeirrar vinnu.
Grindavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Eldgos á Reykjanesskaga Félagsmál Rekstur hins opinbera Húsnæðismál Mest lesið Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira