Stór alda skall á óheppinn myndatökumann Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. mars 2025 21:35 Litlu mátti muna að illa fór þegar aldan sem sést hér skall á myndatökumanninum. Aðsend Sjór gengur víða á land og hefur valdið tjóni á Seltjarnarnesi, Granda og við Sörlaskjól vestur í bæ í kvöld. Flætt hefur til að mynda yfir hringtorgið við Eiðsgranda.
Vakthafandi hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir minnst fjóra dælubíla hafa verið að störfum í hinum öldum lamda vesturhluta borgarinnar í fleiri tíma og hefur að hans sögn flætt ofan í fleiri kjallara, kjallaraíbúðir og bílskúra með tilheyrandi tjóni. Einn óheppinn veðuráhugamaður varð fyrir feyknaröldu á Granda. Til allrar hamingju er í himnalagi með bæði myndatökumann og síma en atvikið er þó góð áminning um að hafa varann á þegar Ægir minnir á sig. Eins og greint var frá í gær fer Seltjarnarnesið oft illa út úr miklum sjógangi við háflóð og kemur það heim og saman við það sem skáldið sagði. „Seltjarnarnesið er lítið og lágt þannig það er svolítið af sjó þar,“ segir vakthafandi. Hann segir tvo dælubíla við störf við Sörlaskjól og Sveinsstaðarvörina, einn við Hrólfsskálavör úti á nesi og annan á Grandanum en eins og kom fram hefur sjór flætt og kaffært hringtorgið við Hringbraut. Eitthvað virðist þó sem að lægt hafi sjóinn og vonir eru bundnar við að versti öldugangurinn sé staðinn yfir.
Veður Reykjavík Seltjarnarnes Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Sjá meira