Sigurmark þremur sekúndum fyrir leikslok á Nesinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. nóvember 2024 21:14 Bjarni í Selvindi skoraði sigurmark Vals gegn Gróttu. vísir/anton Eftir að hafa verið undir nær allan leikinn vann Valur Gróttu, 21-22, á Seltjarnarnesi í Olís-deild karla í kvöld. Bjarni í Selvindi skoraði sigurmark Valsmanna þegar þrjár sekúndur voru eftir.
Gróttumenn spiluðu sterkan varnarleik í fyrri hálfleik og Magnús Gunnar Karlsson var í ham í markinu. Seltirningar leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 12-8. Grótta náði nokkrum sinnum fimm marka forskoti í seinni hálfleik. Þegar tuttugu mínútur voru eftir leiddu heimamenn, 17-12. Þegar tíu mínútur voru eftir var munurinn fjögur mörk, 20-16. Valsmenn unnu hins vegar lokakaflann, 6-1. Agnar Smári Jónsson jafnaði í 20-20 en Jakob Ingi Stefánsson kom Gróttu aftur yfir, 21-20. Þegar tvær og hálf mínúta var eftir jafnaði Bjarni aftur í 21-21. Magnús Gunnar varði frá Agnari Smára og Grótta fékk tækifæri til að komast aftur yfir. En Björgvin Páll Gústavsson varði skot Jóns Ómars Gíslasonar. Valsmenn tóku leikhlé og að því loknu skoraði Bjarni sigurmark þeirra, 21-22. Þetta var í fyrsta sinn sem Valur náði forystunni síðan í stöðunni 5-6 um miðjan fyrri hálfleik. Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði sex mörk fyrir Val og þeir Agnar Smári, Bjarni og Viktor Sigurðsson sitt hver þrjú mörkin. Björgvin Páll varði átta skot (44,4 prósent) og Arnar Þór Fylkisson fimm (31,3 prósent). Jakob Ingi skoraði fimm mörk fyrir Gróttu og Jón Ómar og Atli Steinn Arnarsson fjögur mörk hvor. Magnús Gunnar varði sextán skot í marki Seltirninga, eða 44,4 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Með sigrinum komst Valur upp í 2. sæti deildarinnar. Grótta, sem hefur tapað fjórum leikjum í röð, er í 8. sæti.
Olís-deild karla Valur Grótta Mest lesið Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Golf Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Golf Nik hættir með Breiðablik og tekur við Kristianstad Íslenski boltinn Sveinn Aron skoraði beint úr aukaspyrnu Fótbolti Evrópa með afgerandi forystu fyrir lokadaginn Golf „Sætið tryggt og nú er að klára forsetabikarinn“ Íslenski boltinn Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Enski boltinn Dagskráin í dag: Þéttur pakki úr ýmsum áttum Sport Slot varpaði sökinni á Frimpong Enski boltinn Óskar svaraði syngjandi Skagamönnum: „Ekki fagna of mikið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Sjá meira