Örn réðst á tveggja ára stúlku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. september 2024 09:59 Örninn var að lokum drepinn. Hann var ungur að árum. Bryan Hanson Tuttugu mánaða norsk stelpa var hætt komin þegar örn reyndi að hremma hana við sveitabæ fjölskyldunnar í gær. Móðir og nágranni komu í veg fyrir að örninn næði að fljúga á brott með barnið.
Sú litla var að leik á túni við sveitabæinn í Svorkmo í Orkland í Þrændalögum. Faðir stelpunnar lýsir því að örninn hafi birst skyndilega og náð taki á stelpunni. Móðirin hafi brugðist hratt við, gripið í örninn og þurft að taka á öllu sínu í baráttunni. Nágranni lagði hönd á plóg, að sögn föðurins. Faðirinn segir stúlkunni heilsast vel miðað við aðstæður. „Það þurfti að sauma nokkur spor aftan á höfuðið og það eru för eftir klær arnarins undir hálsinum og á andliti hennar,“ segir faðirinn í samtali við NRK. Bæði börn og fullorðnir hafi verið að leik á túninu þegar örninn lét til skarar skríða. Faðirinn segir árásina hafa verið mikið áfall fyrir móðurina og eldri systkini barnsins sem fylgdust með. Faðirinn var ekki á svæðinu. Örninn var mjög árásargjarn og lét sér ekki segjast þegar móðirin barðist við hann. Nágranni sló til arnarins með priki en örninn gafst ekki upp. Að lokum var örninn aflífaður. Hann var ungur að árum.
Noregur Dýr Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira