Aukin spenna vegna aðgerða Ísraelshers á Vesturbakkanum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. ágúst 2024 10:47 Aðgerðirnar hafa valdið umfangsmiklum skemmdum í Tulkarm. Getty/Anadolu/Issam Rimawi Ísraelsher segist hafa drepið fimm „hryðjuverkamenn“ sem voru „í felum“ á Vesturbakkanum. Aðgerðir Ísraelsmanna hafa meðal annars beinst gegn Tulkarm, þar sem herinn segir mennina hafa falið sig í mosku.
Meðal látnu var Muhhamad Jabber, leiðtogi hryðjuverkahóps í Nur Sham-flóttamannabúðunum í Tulkarm, að sögn hersins. Aðgerðirnar á Vesturbakkanum hafa verið harðlega gagnrýndar og hefur António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kallað eftir því að þeim verð hætt. Josep Borrell, framkvæmdastjóri utanríkismála hjá Evrópusambandinu, varar við úbreiðslu átaka frá Gasa og yfir á Vesturbakkann en stjórnvöld vestanhafs hafa látið nægja að kalla eftir því að Ísraelsher geri allt sem hægt er til að forða almennum borgurum frá skaða. Aðgerðirnar standa enn yfir.Getty/Anadolu/Issam Rimawi Mustafa Barghouti, formaður stjórnmálaflokksins Palestínska þjóðarátakið, sagði í samtali við BBC í morgun að hann óttaðist að aðgerðirnar fælu í sér alvarlega stigmögnun af hálfu Ísrael. Ljóst væri að átökin á Gasa hefðu nú teygt sig yfir á Vesturbakkann. „Þeir eru að nota herafla til að ráðast á fólk sem sætir hernámi, sem er alvarlegt brot á alþjóðalögum,“ sagði Barghouti. Yfirvöld í Ísrael segja aðgerðirnar hins vegar „sjálfsvörn“ og að þær beinist gegn hryðjuverkamönnum. Ayelet Shaked, fyrrverandi ráðherra, sagði í samtali við BBC að Ísraelsmenn hefðu haft veður af því að þar sem Hamas-liðar á Gasa stæðu nú völtum fæti hefðu þeir hvatt liðsmenn sína á Vesturbakkanum til að undirbúa hryðjuverkaárásir á Ísrael. „Við erum að gera allt sem við getum til að verja okkur,“ sagði hann.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Hernaður Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira