Forsetaframbjóðandi með sömu tölu og Jesú Gunnar Karl Halldórsson skrifar 14. maí 2024 17:01 Nafna og talnafræði hafa sumir fræðimenn síðustu alda talið vera lykilinn til að afhjúpa leynda spádóma í biblíunni. Eitt af því sem vakið hefur athygli nafna og talnafræðinga, er sú staðreynd að Kristur er táknaður með tölunni 888. Því má draga þá ályktun að talan 8 sé nátengd kærleik og friði og að friðurinn gæti orðið enn meiri ef átturnar eru fleiri. Þegar reiknað er út nafn Ástþórs Magnússonar kemur margt athyglisvert í ljós í sambandi við friðartöluna 8. Ástþór er fæddur í mánuði 8. Hann er einnig fæddur kl 8. Nöfn Ástþórs mynda einnig þessa frægu tölu; 888. Ástþór eitt og sér er; 1+3+4+9+7+2 =26 (2+6=8) Talan 8 í sviganum er þá kölluð; Grunntala tölunnar 26 eða samtalan. Magnússon er=37 (3+7=10) Wium= 17 (8) Þessar tölur Ástþórs eru samanlagt 80. (8) Nafnið Wium myndar mjög áhugaverða friðartölu (17) en í bókinni; Þegar þú fæddist sem Louis Hamon gaf út árið 1912 er sagt um töluna 17: “Þetta er háandleg tala og í líkingarfræði er hún táknuð með hinni átthyrndu stjörnu Venusar, merki friðar og ástúðar. Hún er og kölluð ,,Töfrastjarnan" og ber þess vitni að maður sá er hún táknar er orðin svo andlega þroskaður að hann er vaxinn yfir þær þrautir og þá erfiðleika sem verða fyrir honum á lífsleiðinni. Hún er líka talin vera ódauðleikatala og bendir til þess að orðstír mannsins lifi að honum látnum.” En þessar þrjár áttur hjá Ástþóri eru þá tilkomnar þannig; Ástþór 26 (8) Wium 17 (8) nöfn lögð saman ásamt Magnússon mynda töluna 80 (8) Fleiri talnafræðileg atriði með tölunni 8 tengjast Ástþóri. Á þessu ári verður Ástþór 71 árs. (8) Í ágúst (8.mán.) Hann byrjaði með Frið 2000 í Austurstrætii 17 (8). Ástþór er þekktur fyrir dúfur í auglýsingum, en tölurnar á bak við orðið dúfur eru; 4 6 8 6 2= 26 (8). Einnig myndar orðið nuna töluna 17, en vefur forsetaframboðs Ástþórs er ; nuna.is Talnafræðina hér að ofann má túlka þannig að Ástþór sé sá sem ætti helst erindi á Bessastaði 2024 (8). Friðartalan 17 er einnig nátengd Íslandi, orðið Ísland hefur tölurnar; 1 3 3 1 5 4= 17. Þá er 17. júní þjóðhátíðardagur landsins og litirnir í þjóðfána Íslands blár, rauður og hvítur mynda einnig töluna 17. Lengdargráðan 17 fer í gegnum Ísland og gps tölurnar yfir Bessastöðum mynda einnig 17. Friðarsúlan í Viðey er ekki þar heldur fyrir tilviljun, en Viðey er í tölum 6 1 4 5 1= 17. Það getur engan vegin verið tilviljun að sjá 17 svona oft í tengslum við Ísland. Svona hlutir sjást ekki nema að einhver æðri máttaröfl séu að verki. Fjallað er um Jeramia spámann í gamla testamentinu sem fékk vitrun um að vara lýðinn við óþægilegum hlutum, en uppskar handtöku líkt og Ástþór. Frásögn um handtöku Jeramía er í kafla 26 í gamla testamentinu, en talan 26 er einmitt talan á bak við nafnið Ástþór. Einnig kemur talan 7 nokkuð við sögu hjá Ástþóri, en Ástþór hefur 7 eins og sjá má, í tölunni 17. Í dag er hann 70 ára. Rúmlega 7 k.m eru frá heimili hans til Bessastaða (Bein loftlína). Ef Ástþór nær kjöri yrði hann sjöundi forseta Íslands. Í biblíunni er einnig að finna frásögnina af Jósef sem var hafnað þegar hann fékk drauma og vitranir, og var svo seldur sem þræll til Egyptalands. Hann tók síðan óvænt við stjórn landsins. Þegar ofangreint er skoðað saman með frásögn af vitrunum Ástþórs í bókinni Virkjum Bessastaði, sem dreift var á öll heimili Íslendinga fyrir 28 árum, þá byrjar maður aðeins að staldra við. Ljóst er að boðskapur Ástþórs er ekki hraðsoðinn kosningaáróður. Getur verið að við séum að falla í sömu gryfju og forfeður okkar úr gamla testamentinu þegar við áttum okkur ekki á mikilvægi þess boðskapar sem okkur er færður í friðarframboði Ástþórs? Höfundur er starfsmaður í prentsmiðju. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Forsetakosningar 2024 Skoðun: Forsetakosningar 2024 Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Skoðun Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Sjá meira