Þyrlusveit og sjóbjörgunarsveitir ræstar út vegna vélarvana flutningaskips Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. apríl 2024 06:54 Þyrla Landhelgisgæslunnar. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út ásamt áhöfninni á varðskipinu Freyju laust fyrir klukkan þrjú í nótt, vegna vélarvana flutningaskips.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Gæslunni. Þar segir að flutningaskipið, sem er erlent, hafi orðið vélarvana um það bil fjórar sjómílur út af Rifstanga. Auk þess að kalla út þyrlusveitina og sjóbjörgunarsveitir var íslenskt togskip í nágrenninu einnig beðið að halda á staðinn. Flutningaskipið rak í átt að landi en áhöfninni tókst að stöðva rekið með því að láta akkeri skipsins falla. Skipið er nú um þrjár sjómílur frá landi og akkeri þess sagt halda. „Vindur er hægur á staðnum og ölduhæð um tveir metrar. Þegar mesta hættan var liðin hjá voru sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar afturkallaðar ásamt togskipinu sem var til taks á staðnum. Gert er ráð fyrir að varðskipið Freyja verði komið á staðinn eftir hádegi,“ segir í tilkynningunni. Á þeim tímapunkti verði tekin ákvörðun með útgerð skipsins um með hvaða hætti það verður dregið af staðnum. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sé í viðbragðsstöðu á Akureyri ef á þarf að halda.
Landhelgisgæslan Björgunarsveitir Skipaflutningar Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira