Son skaut Suður-Kóreu í undanúrslit Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. febrúar 2024 21:49 Heung-Min Son reyndist hetja Suður-Kóreu í kvöld. Lintao Zhang/Getty Images Suður-Kórea tryggði sér í kvöld sæti í úndanúrslitum Asíumótsins í fótbolta með 2-1 sigri gegn Ástralíu í framlengdum leik.
Craig Goodwin kom Áströlum í forystu á 42. mínútu leiksins og sá til þess að liðið leiddi 1-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Það stefndi allt í að þetta yrði eina mark leiksins og að Ástralía væri þar með á leið í undanúrslit, en Suður-Kórea jafnaði metin á síðustu andartökum leiksins. Þar var á ferðinni Hee-Chan Hwang, leikmaður Wolves, á sjöttu mínútu uppbótartíma með marki úr vítaspyrnu og því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurvegara. Suður-Kóreumenn skoruðu eina mark framlengingarinnar þegar Heung-Min Son skoraði beint úr aukaspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingarinnar. Ástralska liðið gróf sig enn dýpra þegar Aiden O'Neill fékk að líta beint rautt spjald örfáum mínútum síðar og úrslitin voru þar með ráðin. Suður-Kórea er á leið í undanúrslit þar sem liðið mætir Jórdaníu, en Jóradnía vann 1-0 sigur gegn Tadjikistan fyrr í dag.
Fótbolti Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana Sjá meira