Skoraði ellefu mörk í leiknum sem hún átti ekki að fá að spila Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2023 10:40 Emilía Ósk Steinarsdóttir átti stórleik á móti Fjölni og hélt heldur betur upp á það að fá að vera með í leiknum. FH Handbolti FH og Selfoss eru með fullt hús í Grill 66 deild kvenna í handbolta eftir umferð helgarinnar. Frammistaða FH-konunnar Emilíu Ósk Steinarsdóttur vakti athygli.
Emilía Ósk Steinarsdóttir fór á kostum í sigri FH á Fjölni í Kaplakrika og hélt heldur betur upp á það að hún fékk eftir allt saman að spila leikinn. Emilía Ósk hafði nefnilega fengið rautt spjald í leik á móti Víkingi fyrr í mánuðinum og var dæmd í eins leiks bann í kjölfarið. FH-ingar voru skiljanlega mjög ósáttir með þann dóm enda sýndu myndbönd að þetta var aldrei rautt spjald. FH sendi inn greinargerð og með myndbandið af brotinu. Dómararnir sáu að sér og ákváðu að draga rauða spjaldið til baka og þar með var leikbann Emilíu úr sögunni. Emilía Ósk mætti því í Fjölnisleikinn og ætlaði heldur betur að njóta þess að fá að spila leikinn sem hún átti ekki að fá að spila. Emilía endaði með ellefu mörk í leiknum eða tveimur mörkum fleiri en allt Fjölnisliðið. Hún var líka langmarkahæst í FH-liðinu með átta mörkum meira en næsti liðsfélagi. FH og Selfoss hafa bæði unnið fjóra af fjórum leikjum í deildinni og stefna upp í Olís deild kvenna að ári.
Handbolti Tengdar fréttir Fékk rautt spjald og leikbann en svo var allt dregið til baka Handboltakonan Emilía Ósk Steinarsdóttir fékk góðar fréttir í gær þegar í ljós kom að hún væri ekki á leið í leikbann eins og allt leit út fyrir. 20. október 2023 11:30 Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Sjá meira
Fékk rautt spjald og leikbann en svo var allt dregið til baka Handboltakonan Emilía Ósk Steinarsdóttir fékk góðar fréttir í gær þegar í ljós kom að hún væri ekki á leið í leikbann eins og allt leit út fyrir. 20. október 2023 11:30