Vetrarfærð víða og snjór í efri byggðum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. október 2023 07:19 Vetrarfærð er víða á landinu. Mynd er úr safni. Vísir/Vilhelm Vetrarfærð er nú víðsvegar um landið og nokkuð hefur snjóað í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins í nótt og einnig á Hellisheiði.
Þá segir Vegagerðin útlit fyrir að veginum frá Kirkjubæjarklaustri að Jökulsárlóni verði lokað núna klukkan sjö og fram eftir degi. Á Suðvesturlandi er staðan þannig að þæfingsfærð og skafrenningur er í Þrengslum og á Bláfjallavegi, snjóþekja og skafrenningur er á Hellisheiði og Mosfellsheiði, krapi og hálkublettir eru á nokkrum öðrum leiðum. Á Vesturlandi er þæfingsfærð í Bröttubrekku en krapi, hálka eða snjóþekja á öðrum leiðum. Á Vestfjörðum er síðan snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og á Hálfdán, krapi er í Súgandafirði. Hálka eða hálkublettir eru á öðrum leiðum. Á Suðurlandi er krapi eða snjóþekja á nokkrum vegum í Uppsveitum sem og á Reynisfjalli og á Suðausturlandi er Þæfingsfærð á milli Jökulsárlóns og Hafnar og krapi á Eldhrauni. Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Vestfjörðum, Suðausturlandi og á Miðhálendinu. Svona var færðin um sjö í morgun á Hellisheiði á Suðurlandi eins og sést á mynd frá vegfaranda til Vísis.Aðsend Gular veðurviðvaranir Þá eru gular veðurviðvaranir Veðurstofu í gildi á Vesturlandi og á Faxaflóa, Suðurlandi, Suðausturlandi, Miðhálendinu og Vestfjörðum. Viðvörun er í gildi á Faxaflóa og á Vesturlandi til klukkan 12:00. Þar er austan og síðar norðaustan hvassviðri. Á Vestfjörðum er veðurviðvörun í gildi til miðnættis vegna norðaustan hvassviðris en stormi til fjalla. Á Suðurlandi er austan hvassviðri með vindhraða á bilinu 10-20 metrum á sekúndu, hvassast við sjóinn. Búast má við talsverðri snjókomu með lélegu skyggni og er viðvörun í gildi til 13:00. Á Suðausturlandi er austan hvassviðri, hvassast í kringum Öræfajökul. Búast má við mikilli snjókomu einkum í kringum Vatnajökul og á Reynisfjalli. Viðvörun í gildi til 14:00. Á Miðhálendinu er austan og síðar norðaustan hvassviðri með snjókomu. Ekkert ferðaveður. Viðvörun í gildi til klukkan 18:00.
Veður Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira