Tikkandi tímasprengja Ástþór Magnússon skrifar 10. október 2023 17:31 Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, hafnaði aðkomu að friðarátakinu Alþingi Jerúsalem þegar ég gekk á hennar fund með erindið fyrir um 30 árum síðan. Sagði deiluna vera tikkandi tímasprengju sem best væri að koma ekki nálægt. Sjálfskipaðir hershöfðingjar Íslands, Katrín Jakobsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir taka hins vegar allt annan pól í hæðina. Eftir að hafa dregið Ísland inn í stríð við Rússland með beinni þátttöku í vopnaflutningum stóð ekki á afdráttarlausri stuðningsyfirlýsingu við áform Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels um að jafna Gaza við jörðu. Nokkrum klukkustundum síðar var lokað fyrir rafmagn, vatn og matvæli til 2.3 milljóna íbúa Gaza sem þegar bjuggu við örbirgð undir hernámi Ísrael. Fylgt var eftir með öflugum loftárásum á almenna borgara og hundruðir barna liggja í valnum. Ætlum við Íslendingar að gerast beinir þátttakendur í stríðsglæpum og þjóðarmorði? Íslenskar mæður komnar út af sporinu Undir forystu tveggja mæðra sem virðast komnar út af sporinu, er hið “friðsæla” og vopnlausa Ísland orðið öflugur talsmaður alþjóðlegs hernaðar. Íslenskir skattgreiðendur greiða fyrir flug undir vopn til Úkraínu og nú er stefnt á frekari útþenslu Íslensks hernaðar með blindum stuðningi við aðgerðir Ísraelsstjórnar gegn palestínsku þjóðinni undir forystu Benjamin Netanyahu. Ísraelsstjórn og þessi leiðtogi þeirra hafa á undanförnum árum verið til umræðu m.a. hjá S.Þ. og alþjóða sakamáladómstólnum vegna stríðsglæpa í Gaza. Fordæmum morð og stríðsglæpi Auðvitað fordæmum við öll morðin sem Hamas liðar hafa framið undanfarna daga í Ísrael. En við leysum ekki úr þeim glæp með stuðningi við enn frekari sturlungaöld í Palestínu. Að loka fyrir vatn og matvæli til Gaza og jafna íbúðarhverfum við jörðu er klárlega stríðsglæpur enda beinast slíkar aðgerðir gegn öllum íbúum svæðisins, almennum borgurum, börnum, gamalmennum. Fyrir þau óhæfuverk sem lítill hópur framdi er ætlunin að refsa 2.3 milljónum manns sem nú þegar lifa við örbirgð og áttu engan þátt í óhæfuverkunum gegn Ísrael. Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn leysir ekkert Íslendingar þekkja það frá Sturlungaöld að auga fyrir auga og tönn fyrir tönn leysir ekkert. Taka verður á grunn orsökum átakanna til að koma á varanlegum friði. Annars geta þessi átök þróast í alþjóðleg átök. Við erum þegar í stríði við Rússland. Ólíklegt er að Rússar og þeirra vina þjóðir í Mið Austurlöndum horfi aðgerðalaus uppá þjóðarmorð í Palestínu. Tvær milljónir flóttamanna til Íslands? Þórdís Kolbrún Reykfjörð segir Ísland opna faðminn gagnvart flóttafólki frá Palestínu. Ráðgerir hún að flytja yfir tvær milljónir íbúa Gaza til Íslands til að veita Netanyahu tækifæri að jafna heimili þeirra við jörðu? Utanríkisráðherra ætlar að auka enn frekar á flóttamannastrauminn til landsins á kostnað Íslenskra skattgreiðenda í stað þess að taka á rót vandans. Nær væri að ná samstöðu þjóðarleiðtoga um einhverja skynsamlega lausn við Ísrael. Að halda áfram að kúga palestínsku þjóðina, halda henni í gíslingu, svelta fólkið í hel, flytja til Íslands eða útrýma þeim með stríðstólum er ekki varanleg lausn til friðar. Útilokað að útrýma „Hamas“ við núverandi ástand Hamas er andspyrnuhreyfing gegn hernámi og kúgun almennings í Palestínu sem hefur verið hrakið frá heimilum sínum af landtökufólki í Ísrael. Stjórnvöld í Palestínu og Alþjóðasamtök hafa ítrekað varað við því að það muni hafa skelfilegar afleiðingar að taka ekki á grunnorsökum andspyrnunar, hinu ólögmæta hernámi og landnámi Ísrael. Við erum nú að sjá óhugnanleg morð og gíslatökur framin af ungu fólki sem hefur alist upp í þeirri örbirgð sem Ísrael með stuðningi alþjóðasamfélagsins hefur skapað í Gaza. Útilokað er að uppræta slíka andspyrnu á meðan réttur fólksins til mannsæmandi lífs er ekki virtur. Um leið og núverandi anspyrnuliðum er útrýmt koma aðrir í þeirra stað. Ísraelsmenn fyrstir til að beita hryðjuverkum Þegar Íslendingar viðurkenndu Ísrael sem fullvalda ríki árið 1948 var það okkar atkvæði sem tryggði sæti þeirra hjá Sameinuðu þjóðunum. Stuðningur okkar byggði á áætlun alþjóðasamfélagsins um landamæri árið 1947. Ísrael sveik samkomulagið og hefur nú sölsað undir sig nær allt palestínskt land. Ísrael var byggt á grunni hryðjuverka m.a. í King David hótelinu í Jerúsalem þar sem nær 100 manns létu lífið, helmingurinn Bretar en þá fóru Bretar með yfirráðin. Ísraelsmenn urðu fyrstir til að beita hryðjuverkum til að knýja fram Ísraelsríki og kenndu þannig öðrum íbúum hryðjuverk. Síðan hefur Ísrael sölsað undir sig meira og meira land með ofbeldi. Íslendingar bera ábyrgð Íslendingar bera mikla ábyrgð í þessu máli. Eins og staðan er núna höfum við svikið íbúa Palestínu og lagt til aðstoð við ólöglegt landnám sem hefur hrakið fólk frá heimilum sínum. Nú þarf frumkvæði héðan að þrýsta á Ísrael að standa við upprunalega samkomulagið um land skiptingu sem er eini raunhæfi byrjunarreiturinn fyrir varanlegan frið. Palenstínska þjóðin þarf að geta búið við sama öryggi sem og aðrar þjóðir í sínu eigin landi án hernáms. Hlutverk Forseta Íslands Eins og ég hef vakið athygli á frá árinu 1996 með átakinu “Virkjum Bessastaði” gæti Forseti Íslands gegnt lykilhlutverki til friðar í Mið Austurlöndum. Fyrir þrjátíu árum fannst landsmönnum þetta Íslandi fjarlægt. Staðreyndin er hins vegar sú að við erum nú komin á bólakaf í stríðsrekstur sem taglhnýtingar bandarískra hergagnaframleiðenda. Utanríkisráðherra Íslands tók að sér að þeytast heimshorna á milli að tala fyrir auknum hernaði og hernaðarútgjöldum sem er olía á ófriðarbálið og vinnur gegn friði. Íslendingar eiga að að tala fyrir friði. Forseti Íslands á að nota áhrif síns embættis til að koma á fót Alþingi Jerúsalem sem alþjóðlegri stofnun til friðarviðræðna og úrvinnslu mála í Palestínu og Ísrael til varanlegs friðar. Hvorki Íslendingar né aðrar þjóðir sem virða mannréttindi geta viðurkennt ríki sem þanið hefur verið út með hervaldi á kostnað barna og annarra saklausra borgara sem haldið hefur verið áratugum saman í angist og gíslingu. Slíkt ástand ógnar heimsfriðnum. Ísrael í dag er eitthvað allt annað en Íslendingar studdu 1948. Höfundur er stofnandi Friðar 2000. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ástþór Magnússon Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Sjá meira
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun