Kolstad einum sigri frá titlinum eftir dramatískan sigur Smári Jökull Jónsson skrifar 31. maí 2023 18:03 Sigvaldi Kolstad Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson eru nú aðeins einum sigri frá Noregsmeistaratitlinum í handbolta eftir 30-29 sigur Kolstad á Elverum í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi þeirra.
Staðan í einvíginu var 1-1 fyrir leikinn í dag þar sem bæði lið höfðu unnið sigra á sínum heimavöllum. Leikurinn í kvöld var því algjör lykilleikur og tækifæri fyrir bæði lið að koma sér í lykistöðu. Líkt og við var að búast var leikurinn jafn og spennandi. Liðin skiptust á að skora í upphafi en gestirnir frá Elverum náðu fjögurra marka forskoti eftir um tuttugu mínútur í stöðunni 12-8. Heimamenn svöruðu þó fyrir lok fyrri hálfleiks og staðan var 15-14 gestunum í vil að honum loknum. Í síðari hálfleik hélt spennan svo áfram. Elverum var skrefinu á undan í upphafi en Kolstad náði frumkvæðinu þegar seinni hálfleikur var hálfnaður. Þeir komust í 26-24 en Elverum jafnaði á ný skömmu síðar og eftir það munaði aldrei meira en einu marki á liðunum. Elverum jafnaði metin í 29-29 þegar tæpar þrjár mínútur eftir og í kjölfarið fóru sóknir forgörðum hjá báðum liðum. Kolstad tók leikhlé með tuttugu og eina sekúndu á klukkunni og þegar fjórar sekúndur eftir skoraði Simen Lyse sigurmarkið fyrir heimamenn og tryggði þeim sætan sigur. Kolstad er þar með komið í forystu í einvíginu og getur tryggt sér norska meistaratitilinn með sigur í leik fjögur. Janus Daði og Sigvaldi Björn skoruðu báðir fimm mörk fyrir Kolstad í leiknum en Orri Freyr Þorkelsson komst ekki á blað hjá Elverum.
Norski handboltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Sjá meira