Handbolti

Han­sen leikur í mynd um ein­elti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það

Sindri Sverrisson skrifar
Mikkel Hansen bregður fyrir í stiklunni úr myndinni.
Mikkel Hansen bregður fyrir í stiklunni úr myndinni. Youtube/Angel Films

Danska handboltastjarnan Mikkel Hansen, sem lagði skóna á hilluna eftir ólympíumeistaratitilinn sumarið 2024, leikur sjálfan sig í danskri bíómynd sem fjallar um handboltastrák sem lagður er í grimmilegt einelti.

Myndin ber heitið Yfir strikið og byggir á sannri sögu rithöfundarins Ahrnt Clausen, og upplifun hans sem föður drengs sem lagður var í einelti. 

Ejgil Riis Hansen leikur drenginn og Martin Greis-Rosenthal pabbann en Hansen bregður einnig fyrir í myndinni sem verður frumsýnd í nóvember. Stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan.

Hansen þekkir það sjálfur að hafa verið lagður í einelti, og að hafa lagt aðra í einelti, eins og hann ræddi um þegar hann stofnaði samtök gegn einelti árið 2015. Þau samtök lifa enn góðu lífi og hafa heitið Hej Fonden frá árinu 2022, þegar kollegar Hansen úr handboltanum, Mathias Gidsel og Mie Höjlund, bættust í hópinn og gerðust stjórnarmeðlimir.

„Ég hef sjálfur mátt þola það að vera lagður í einelti og ég hef sjálfur tekið þátt í að leggja aðra í einelti þegar ég var yngri. Þannig að þetta er auðvitað tilraun til að sýna öðrum að þeir ættu helst ekki að falla í þá gryfju,“ sagði Hansen þegar hann stofnaði samtökin.

Hann tók einnig þátt í því árið 2016 að hleypa af stokkunum herferðinni Antibulli, gegn einelti, ásamt Mary Fonden — sjóðnum sem María Danadrottning stýrir og berst gegn því að fólk einangrist.

Yfir strikið ku vera fyrsta kvikmyndin sem Hansen leikur í. Tvö ár eru síðan að hann lagði skóna á hilluna eftir einstakan feril þar sem hann vann meðal annars þrjá heimsmeistaratitla, tvo ólympíumeistaratitla og einn Evrópumeistaratitil, með danska landsliðinu, auk fjölda meistaratitla með félagsliðum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×