Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. ágúst 2026 08:32 Noah Kretzschmar bíður eftir því að Guinness svari hvort hann hafi sett heimsmet. Hinn átján ára Noah Kretzschmar skoraði þrennu á aðeins 92 sekúndum þegar Hillerød vann stórsigur á Væggerløse, 12-0, í dönsku bikarkeppninni á dögunum. Hann veit ekki enn hvort hann setti heimsmet í leiknum.
Eftir að Kretzschmar var svona eldsnöggur að skora þrennuna hefur hann beðið eftir staðfestingu frá Guinness á því hvort hann hafi sett heimsmet í leiknum gegn Væggerløse með því að skora þrennu á svona stuttum tíma. „Ég er frekar spenntur. Allt frá því ég skoraði þrennuna hef ég vonað að þetta sé sneggsta þrenna sögunnar. Ég hef heyrt að það séu góðar líkur á því, þannig að ef það verður líka samþykkt hjá Guinness, þá fyndist mér það frábært,“ sagði Kretzschmar. „Venjulega er ég frekar þolinmóður en ég vil gjarnan fá svar sem fyrst um hvaða met þetta eru, því það væri frábært að fá staðfest hvort þetta sé eitthvert Guinness-met, Danmerkurmet eða hvað við erum að tala um.“ Kretzschmar segir að það myndi hafa mikla þýðingu fyrir sig að komast í heimsmetabók Guinness. „Það myndi þýða mikið fyrir mig ef þetta er í raun heimsmet. Mér finnst sjálfum frekar flott að eiga heimsmet og sérstaklega eitt sem tengist þrennu,“ sagði Kretzschmar sem er farið að lengja eftir svari. „Ég vil eiginlega fá svar um metið fljótlega. Það hefur verið talað svo mikið um þetta svo nú vil ég líka bara fá þetta staðfest fljótlega, ef eitthvað er.“ Kretzschmar gæti þó þurft að sýna þolinmæði því það getur tekið Guinness allt að 24 vikur að svara mettilraunum. Þó er hægt að flýta fyrir afgreiðslu málsins með því að greiða Guinness sérstakt flýtimeðferðargjald.
Danski boltinn Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Modric skammast sín Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Fleiri fréttir Breiðablik - Þróttur | Geta sett aðra höndina á titilinn FH - ÍBV | Hafnfirðingar þurfa sigur Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjá meira