KR-ingar semja við tíu leikmenn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. apríl 2023 15:45 Veigar Áki Hlynsson verður áfram í herbúðum KR. Vísir/Bára Dröfn Þrátt fyrir að KR-ingar séu fallnir ú Subway-deild karla í körfubolta hefur liðið tryggt sér þjónustu tíu leikmanna fyrir komandi átök í 1. deildinni á komandi leiktíð.
Karlalið KR féll úr efstu deild í fyrsta sinn í sögunni á nýafstöðnu tímabili í Subway-deild karla og mun því spreyta sig í 1. deild í fyrsta sinn í haust. Liðið sendi þó frá sér tilkynningu í dag þar sem segir að félagið hafi samið við tíu uppalda KR-inga fyrir komandi átök, en þar af eru átta leikmenn sem framlengja við félagið og tveir sem snúa aftur heim. Af þessum tíu leikmönnum ber líklega hæst að nefna hinn 22 ára gamla Veigar Áka Hlynsson, sem lék lykilhlutverk í liði KR í Subway-deildinni í vetur. Veigar skrifar undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt. Gunnar Ingi Harðarson skrifaði einnig undir tveggja ára samning við félagið, en hann snéri aftur til KR um áramótin. Þá snúa þeir Arnór Hermannsson og Illugi Steingrímsson einnig aftur á heimahagana eftir veru hjá Ármanni í 1. deildinni. Arnór varð Íslandsmeistari með KR í þrígang, árin 206-2018 og Illugi varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2015. Auk þess samdi félagið við sex unga leikmenn sem allir voru í kringum aðalliðið í vetur. Það eru þeir Lars Erik Bragason, Hallgrímur Árni Þrastarson, Ólafur Geir Þorbjarnarson, Gísli Þór Oddsteinsson, Mikael Snorri Ingimarsson og Emil Richter, en þeir skrifa allir undir tveggja ára samning.
KR Mest lesið Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ Fótbolti „Það verða breytingar“ Fótbolti „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Íslenski boltinn Þungavigtin: Jói Kalli á Tene níu dögum fyrir bikarúrslitaleik Fótbolti Arsenal að missa menn í meiðsli Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Fótbolti Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina Íslenski boltinn Rebrov: Karakterinn lykilatriði Fótbolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsti þjálfarinn í NBA fokinn Jón Axel gat ekki komið í veg fyrir tap Elvar með flestar stoðsendingar í sigri Mario sleit krossband: „Gríðarlegt áfall fyrir Njarðvík“ Uppgjör: Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Finnur Freyr: „Kannski hefur Davíð Tómas eitthvað til síns máls“ Styrmir sterkur í sigri á Spáni Tindastóll - Þór Þ. 96-82 | Þægilegt hjá Stólunum Mark Cuban mættur aftur Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Uppgjörið: Keflavík - ÍA 96-72| Sigur Keflavíkur aldrei í neinni hættu Meistararnir stungu af í seinni Uppgjörið: ÍR - Grindavík 78-86 | Tveimur hent úr húsi en toppliðið heldur flugi KR - Njarðvík 88-97 | Dýrmætur sigur gestanna ÍA sækir Kanann sem Ármann losaði Extraleikarnir: Mættu báðir með markvörð úr silfurliðinu í Peking „Heimskuleg taktík hjá mér“ Sátt eftir fyrsta landsleikinn: „Vá, ég er eiginlega orðlaus“ Uppgjörið: Ísland - Serbía 59-84 | Löguðu erfiða stöðu Elvar með sautján stig gegn sínu gamla félagi Martin stoðsendingahæstur í sigri Nýtt fyrirkomulag á vali leikmanna í stjörnuleik NBA „Þjálfun snýst um samskipti“ Rebekka Rut spilar fyrsta landsleikinn í kvöld Ármenningar leggja árar ekki í bát og leita að nýjum Kana „Mér finnst við vera að taka skref í rétta átt fyrir framtíðina“ Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Sjá meira