Óvelkomnir í annarlegu ástandi neita að fara Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. nóvember 2022 06:25 Menn í annarlegu ástandi voru víða til vandræða í höfuðborginni í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur útköllum í gærkvöldi þar sem menn í annarlegu ástandi neituðu að yfirgefa staði þar sem þeir voru óvelkomnir. Þá barst henni einnig tilkynning um líkamsárás á veitingastað.
Um klukkan 21.40 voru afskipti höfð af manni í annarlegu ástandi í póstnúmerinu 105. Maðurinn var staddur á hóteli sem hann neitaði að yfirgefa og fór ekki að fyrirmælum lögreglu þegar hún mætti á vettvang. Hann var þá handtekinn og vistaður í fangageymslu. Tveimur tímum seinna var óskað eftir aðstoð lögreglu í miðborginni þar sem ölvaður maður var kominn inn í húsnæði og vildi ekki fara. Húsráðandi hafði reynt að vísa manninum út en átök brotist út og maðurinn slegið til húsráðanda, með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á enni. Húsráðandi var fluttur á Landspítala en árásarmaðurinn handtekinn. Lögregla var einnig kölluð til vegna manns sem var að grýta hús og vegna þjófnaðar á farangri ferðamanns, þar sem tveimur ferðatöskum var stolið. Þá var tilkynnt um líkamsárás á veitingastað í póstnúmerinu 111 rétt fyrir miðnætti. Þar réðist maður í annarlegu ástandi á öryggisvörð, sem hafði verið kallaður á vettvang til að vísa manninum út. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Innlent Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Innlent Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Innlent Biður þingmenn að gæta orða sinna Innlent „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Innlent Fleiri fréttir Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Sjá meira