Pétur: Tíu stiga forskot er ekki neitt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. nóvember 2022 20:51 Pétur Ingvarsson hrósaði liðsheild Breiðabliks eftir leik. vísir/vilhelm Pétur Ingvarsson, þjálfari Breiðabliks, var nokkuð sáttur eftir sigur sinna manna á ÍR, 87-105, í Skógarselinu í kvöld. „
Við gerðum nóg til að klára þetta. Við vissum að þeir væru miklu betri en þeir hafa spilað, þeir eru með nýjan Kana og orka í þessu hjá þeim. Þeir voru líka á heimavelli og hitta betur þar,“ sagði Pétur við Vísi eftir leik. „Við stefndum alltaf á að vera með tíu stiga forskot til að hafa eitthvað til að hlaupa upp á undir lokin þegar þeir tækju sitt síðasta áhlaup.“ ÍR minnkaði muninn í tvö stig seint í 3. leikhluta en Breiðablik svaraði með ellefu stigum í röð og náði forskoti sem liðið lét ekki af hendi. „Liðin spila svolítið hratt og stigin koma í skorpum. Tíu stiga forskot er ekki neitt, bara þrjár sóknir, nokkrir þristar og þú ert kominn aftur inn í leikinn. Við vissum það alveg og þess vegna reyndum við að vera með tíu stiga forskot eins lengi og hægt væri,“ sagði Pétur. Honum fannst góður heildarbragur á Blikum í leiknum í kvöld enda skoruðu sex leikmenn liðsins tólf stig eða meira. „Ég var ánægður með liðsheildina og liðið. Það var aðalmálið. Menn gerðu þetta saman. Ég er með fullt af fínum leikmönnum og þótt þú eigir kannski ekki góðan leik á maðurinn við hliðina kannski ágætis leik og getur hjálpað þér að vinna leikinn,“ sagði Pétur að lokum.
Subway-deild karla Breiðablik ÍR Mest lesið Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Fótbolti Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Íslenski boltinn Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti Leik lokið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Íslenski boltinn „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport David Beckham lagður inn á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Sjá meira