Barn flutt á bráðamóttöku eftir fall Atli Ísleifsson skrifar 28. október 2022 06:18 Ekki segir til um aldur barnsins né hvað fallið hafi verið hátt í dagbók lögreglu. Vísir/Vilhelm Barn var flutt á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík til skoðunar eftir fall.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem segir frá verkefnum gærkvöldsins og næturinnar. Ekki segir til um aldur barnsins eða hvað fallið hafi verið hátt, en fram kemur að atvikið hafi átt sér stað í hverfi 101. Einnig segir frá því að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu á hótel í hverfi 105 vegna manns sem var grunaður um þjófnað. „Einstaklingurinn ölvaður og ósáttur við afskipti lögreglu og reyndi hann að hrækja á lögreglumenn. Einstaklingurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.“ Þá segir frá því að tilkynnt hafi verið um slys í hverfi 105 þar sem maður á rafhlaupahjóli hafi fallið í jörðina. Segir að talið sé að maðurinn hafi misst stjórn á hjólinu vegna ísingar og var hann fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Féll af þaki húss Sömuleiðis var tilkynnt um vinnuslys í hverfi 201 í Kópavogi þar sem maður hafði fallið af þaki húss sem verið var að finna við. Hann var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar en meiðslin eru ekki talin alvarleg. Þá segir frá því að tilkynnt hafi verið um tvö innbrot í fyrirtæki í hverfi 105 og að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu að veitingastað í Grafarvogi í Reykjavík vegna manns sem var ósjálfbjarga sökum ölvunar. Ekki hafi tekist að koma einstaklingnum heim og er hann því vistaður í fangaklefa þar til rennur af honum.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Sjá meira