Telja sig hafa gómað raðmorðingjann Árni Sæberg skrifar 16. október 2022 23:53 Stanley McFadden lögreglustjóri greindi frá handtökunni á blaðamannafundi í dag. AP Photo/Rich Pedroncell Lögreglan í Stockton í Kaliforníu tilkynnti í dag að hún hefði handtekið mann sem grunaður er um sex morð á síðustu þremur mánuðum.
Stockton er í miðju Kaliforníu-ríki, rétt austan við San Francisco og sunnan við Sacramento. 320 þúsund manns búa í borginni, aðeins færri en á Íslandi. Raðmorðingi hefur herjað á íbúana síðustu þrjá mánuði. Sex karlmenn hafa verið skotnir til bana og ein kona særð. Nú telur lögreglan í Stockton að raðmorðinginn sé Wesley Brownlee. Hann var handtekinn í gær. Í frétt AP um málið segir að Brownlee hafi verið að leita að næsta fórnarlambi að næturlagi klæddur svörtum fötum. Lýst hafði verið eftir svartklæddum manni með grímu og hundruð íbúa tilkynntu grunsamlegar mannaferðir. Á blaðamannafundi sagði Stanley McFadden, lögreglustjóri Stockton, að ábendingar almennings hafi leitt til handtöku Brownlees, sem er á fimmtugsaldri. Á sama blaðamannafundi sagði Kevin Lincoln, borgarstjóri Stockton, að hann hefði grátið gleðitárum þegar hann frétti af handtöku Brownlees. „Borgin gat sofið örlítið betur í nótt. Enginn borgari ætti að þurfa að líta aftur fyrir sig á gangi um borgina vegna ótta,“ sagði hann.
Erlend sakamál Bandaríkin Mest lesið Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Innlent Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Erlent Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Erlent Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Innlent Kallar þjóðaröryggisráð saman Innlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Innlent Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Erlent Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Innlent Fleiri fréttir Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Mafíósar dæmdir til dauða Öruggur um að brátt ríki friður á Gasa Freista þess að koma aðildarumsókn Úkraínu fram hjá Orbán Adams hættir og Cuomo og Mamdani skiptast á skotum Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Evrópusinnar héldu meirihluta í Moldóvu Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Æðsti leiðtogi mormóna látinn Banna dróna yfir Danmörku Óttast úrbræðslu vegna rafmagnsleysis í kjarnorkuveri Sjálft lýðræðið undir er Moldóvar ganga til kosninga Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Sjá meira