Notuðu naglamottu til að binda endi á eftirför Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. október 2022 06:18 Lögreglan veitt ökumanninum eftirför alla leið úr Árbæ upp í Mosfellsbæ. Vísir/Vilhelm Lögregla þurfti að beita naglamottu til að stöðva ökumann sem hún hafði elt alla leið úr Árbæ upp í Mosfellsbæ í nótt. Maðurinn ók meðal annars yfir hringtorg, á móti umferð og notaði símann undir stýri. Hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna undir stýri.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir að lögregla hafi hafið eftirför eftir að hún gaf ökumanninum merki um að stöðva akstur en hann hafi hundsað þau fyrirmæli. Eftirför hafi þá hafist um Árbæ, Grafarholt og alla leið í Mosfellsbæ. Maðurinn hafi á þeim tíma ekið of hratt, yfir hringtorg og á móti aksturstefnu. Loks hafi tekist að stöðva manninn með notkun naglamottu. Maðurinn verði þá ákærður fyrir fjöldann allan af umferðarlögum og var vistaður í fangageymslu. Annar ökumaður var stöðvaður af lögreglu eftir nokkra eftirför en hann hafði rástað mikið og var ökumaðurinn handtekinn grunaður um að vera óhæfur til að aka bifreið sökum lyfjamisnotkunar. Sá var færður á lögreglustöð til sýnatöku. Þriðji var stöðvaður við akstur grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Hann reyndist einnig hafa verið að nota farsíma við akstur, án handfrjáls búnaðar. Þá reyndist hann ekki vera með gild ökuréttindi. Nokkrar tilkynningar bárust lögreglu vegna þjófnaðar. Fyrst vegna innbrots í nýbyggingu í gær þar sem verkfærum hafði verið stolið. Þá var tilkynnt um innbrot í geymslur í fjölbýlishúsi en búið var að stela útivistarbúnaði. Einnig var tilkynnt um þjófnað úr verslun og rúðubrot í fjölbýlishúsi.
Lögreglumál Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent Fleiri fréttir Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Sjá meira