Segir stjórnarkrísu ríkja í sveitarfélaginu eftir álit ráðuneytisins Atli Ísleifsson skrifar 10. október 2022 10:58 Innviðaráðuneytið hefur birt álit sitt eftir kvörtun sem snýr að stjórnsýslu Langanesbyggðar. Á myndinni má ská Þórshafnarkirkju. Vísir/Vilhelm „Verulegir annmarkar“ voru á framkvæmd fundar sveitarstjórnar Langanesbyggðar þann 11. ágúst síðastliðinn þar sem ráðning sveitarstjóra, nýtt nafn á nýlega sameinuðu sveitarfélagi Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps, og nýtt merki sveitarfélagsins voru meðal annars á dagskrá.
Þetta er mat innviðaráðuneytisins og segir í áliti þess að framkvæmd fundarins hafi ekki verið í samræmi við sveitarstjórnarlög þar sem fundarboðun sveitarstjórnar hafi ekki borist með nægum fyrirvara. Boðað hefur verið til aukafundar í sveitarstjórn Langanesbyggðar síðar í mánuðinum til að taka mál fyrir að nýju. Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Sigurður Þór Guðmundsson, oddviti sveitarstjórnar.Langanesbyggð Í álitinu kemur fram einn sveitarstjórnarmaðurinn í minnihluta, Þorsteinn Ægir Egilsson, hafi kvartað til oddvitans Sigurðar Þórs Guðmundssonar og síðar ráðuneytisins vegna fundarboðsins. Fundurinn hafi farið fram fimmtudaginn 11. ágúst klukkan 17, en fundarboð hafi hins vegar ekki borist til sveitarstjórnarmanna fyrr en tæpum tveimur sólarhringum fyrir fundinn, eða þriðjudaginn 9. ágúst klukkan 19:23. Fundarboð sem þessi þurfa að berast að minnsta kosti tveimur sólarhringum fyrir fund. Í álitinu er framvindan rakin og kemur þar fram að eftir að Þorsteinn Ægir hafði kvartað til oddvitans Sigurðar Þórs vegna fundarboðsins hafi Sigurður Þór að morgni miðvikudagsins 10. ágúst sent tilkynningu á kjörna fulltrúa og tilkynnt að aukafundur yrði boðaður í stað hins reglubundna sveitarstjórnarfundar. Aukafundurinn var hins vegar á dagskrá á sama tíma, með sömu dagskrá og með sömu gögnum og hinn reglulegi fundur sem skipulagður var. Ráðuneytið telur sömuleiðis ljóst að þær ákvarðanir sem teknar voru á hinum umrædda fundi hafi verið ógildar vegna annmarkanna, „nema veigamikil sjónarmið mæli á móti því“. Beinir ráðuneytið því þeim tilmælum beint sveitarfélagsins að leggja mat á hvort tilefni sé til að taka mál fyrir að nýju sem samþykkt hafi verið á fundi sveitarstjórnar 11. ágúst síðastliðinn með lögmætum hætti. Hafa boðað til aukafundar síðar í mánuðinum Álit innanríkisráðuneytisins var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar síðastliðinn fimmtudag. Segir þar í bókun að sveitarstjórn samþykki að boða til aukafundar í sveitarstjórn þriðjudaginn 18. október. „Leitað verði álits lögfræðings Sambands Ísl. sveitarfélaga á málinu fyrir fundinn varðandi hvaða mál þarf að taka fyrir að nýju í samræmi tilmæli ráðuneytisins og það lagt fyrir í byrjun fundar. Að fengnu mati verði þau mál sem þarf að fjalla um aftur tekin fyrir og hafa ekki verið afgreidd á þessum fundi,“ segir í bókuninni. Þórshöfn og Bakkafjörður eru stærstu þéttbýliskjarnarnir í Langanesbyggð og eru íbúar um sex hundruð talsins. Myndin er tekin á Þórshöfn.Vísir/Vilhelm „Krísuástand“ Ráðningarsamningur við Björn S. Lárusson sem nýr sveitarstjóri Langanesbyggðar var sömuleiðis á dagskrá fundarins á fimmtudaginn, sem og tillaga um nýtt merki og nafn sameinaðs sveitarfélags Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps skuli vera Langanesbyggð. Minnihlutinn lét hins vegar bóka að vegna álits ráðuneytisins um fundinn 11. ágúst og „þeirrar stjórnarkrísu sem upp er komin í sveitarfélaginu“, þá sé það það forgangsmál að tryggja það að Björn fái löglegt umboð til að starfa sem slíkur. Því þurfi að taka til afgreiðslu að nýju ráðningu sveitarstjórans. Um leið verði hægt að binda enda á það „krísuástand sem uppi hefur verið í sveitarfélaginu síðan 1. september sl.“ Frávik sem mun ekki endurtaka sig Oddvitinn Sigurður Þór Guðmundsson sagði í svörum sínum til innviðaráðuneytisins að fundarboðið fyrir fundinn 11. ágúst hafi ekki borist í tæka tíð „vegna anna“. Kom þó fram að öllum sveitarstjórnarmönnum hafi þó mátt vera ljóst að halda ætti fund í sveitarstjórn þann 11. ágúst klukkan 17 og hvaða mál yrðu þar á dagskrá, meðal annars vegna fyrri tölvupóstsamskipta og að flestir fulltrúar hafi setið kynningarfund í fundarsal sveitarfélagsins þriðjudaginn 9. ágúst milli klukkan 16 og 19:20 þar sem þetta hafi verið rætt. Oddvitinn tók þó undir með fulltrúum í minnihlutanum að gæta þurfi til þess til framtíðar að fundarboð og fundargögn berist sveitarstjórnarmönnum innan tilskilinna tímamarka það er tveggja sólarhringa. Um hafi verið að ræða frávik sem muni ekki endurtaka sig. Þórshöfn og Bakkafjörður eru stærstu þéttbýliskjarnarnir í Langanesbyggð og eru íbúar um sex hundruð talsins.
Langanesbyggð Sveitarstjórnarmál Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira