Heimir í viðræður við HB Sindri Sverrisson skrifar 9. september 2022 11:31 Heimir Guðjónsson stýrði síðast liði Vals en lét af störfum í júlí. vísir/Diego Knattspyrnuþjálfarinn Heimir Guðjónsson gæti mögulega verið á leið aftur til starfa í Færeyjum þar sem hann starfaði við afar góðan orðstír.
Sigursælasta félag Færeyja, HB, setti sig í samband við Heimi og óskaði eftir viðræðum við hann. Heimir, sem er án starfs sem stendur, staðfesti það í samtali við Vísi að hann hefði samþykkt viðræður eftir tímabilið. Samningur núverandi þjálfara HB, Dalibor Savic, rennur út eftir tímabilið sem lýkur í lok október. Heimir, sem er 53 ára gamall, stýrði HB leiktíðirnar 2018 og 2019 og var valinn þjálfari ársins fyrra árið, eftir að hafa gert HB að Færeyjameistara. Seinna árið varð liðið bikarmeistari undir stjórn Heimis. Frá Færeyjum fór Heimir til Vals og skrifaði undir samning við félagið haustið 2019. Hann gerði Val að Íslandsmeistara 2020, eins og hann hafði áður gert svo oft hjá FH, en lét af störfum í júlí í sumar eftir að árangur liðsins hafði verið undir væntingum í fyrra og á þessari leiktíð. HB er sigursælasta lið Færeyja með 24 meistaratitla, fimm fleiri en KÍ. Félagið vildi halda Heimi eftir tímabilið 2019 en hann ákvað þá frekar að snúa aftur heim í íslenska boltann. HB er sem stendur í 3. sæti færeysku deildarinnar, þegar sex umferðir eru eftir, en nánast alveg búið að missa af möguleikanum á meistaratitlinum, sextán stigum á eftir toppliði KÍ. Þá er liðið í undanúrslitum bikarkeppninnar.
Besta deild karla Færeyski boltinn Fótbolti Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Fleiri fréttir Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Sjá meira