Ármann tryggði sér deildarmeistaratitilinn með stórsigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. mars 2022 20:54 Ármann tryggði sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í kvöld, Karfan.is Ármann er deildarmeistari í 1. deild kvenna eftir öruggan 34 stiga sigur gegn botnliði Vestra í kvöld, 80-46.
Yfirburðir Ármanns voru miklir strax frá fyrstu mínútu, en liðið hafði tíu stiga forskot að fyrsta leikhluta loknum. Ármann jók forystu sína umtalsvert fyrir hálfleikshléið, en staðan var 38-18 þegar gengið var til búningsherbergja. Heimakonur gerðu svo endanlega út um leikinn í þriðja leikhluta þar sem þær skoruðu 28 stig gegn aðeins átta stigum Vestra. Leikmenn Ármanns gátu því leyft sér að slaka aðeins á í lokaleikhlutanum, en lokatölur urðu sem fyrr segir 80-46. Schekinah Sandja Bimpa átti flottan leik í liði Ármanns og skoraði 26 stig, ásamt því að taka 15 fráköst og gefa fjórar stoðsendingar. Í liði Vestra var Sara Emily Newman atkvæðamest með 12 stig. Þrátt fyrir að liðið sé búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn er sæti í efstu deild ekki í höfn. Ármann mætir liðinu sem hafnar í fjórða sæti deildarinnar í úrslitakeppni um sæti í Subway-deild kvenna á næsta tímabili.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Körfubolti Leysti frá skjóðunni um hvað gerðist í þriðja hring Sport Látinn eftir höfuðhögg í leik Enski boltinn Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Körfubolti „Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Stjarnan vann sanngjarnt og titillinn bíður betri tíma Íslenski boltinn Úr efstu deild í fótbolta á HM í utanvegahlaupum: „Ætla að njóta sársaukans“ Sport Trump vill koma í veg fyrir að UEFA banni Ísrael Fótbolti Giroud tryggði sigurinn eftir mark Sævars Fótbolti Dóttir auðkýfings orðin forseti félags 23 ára gömul Fótbolti Fleiri fréttir Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Sjá meira
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Stjarnan vann sanngjarnt og titillinn bíður betri tíma Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Stjarnan vann sanngjarnt og titillinn bíður betri tíma Íslenski boltinn