Að efla hreysti þjóðar Marta Eiríksdóttir skrifar 7. desember 2021 11:01 Fleiri heimsfaraldrar eru á leiðinni segja þeir og jafnvel miklu alvarlegri en þessir sem hafa komið áður. Ekki getum við sprautað fólk endalaust í handleggina, við verðum að hugsa dæmið upp á nýtt! Hvernig væri að efla hreysti þjóðar? Við notumst við forvarnir í áfengis-og vímuefnamálum með ýmsum leiðum. Gætum við farið svipaða leið með heilsu landsmanna, unnið í forvörnum og stuðlað að líkamshreysti barna og fullorðinna í gegnum hreyfingu og betra mataræði, meira grænmeti, án þess að bólusetja það eins og gert er núna í þessum faraldri? Hvern langar að láta bólusetja sig einu sinni á ári eða oftar, eins og þetta árið, þrisvar sinnum! Fórnarkostnaðurinn hefur verið allt of mikill sjáum við þegar lesnar eru tölur þeirra sem hafa sent inn hugsanleg dæmi af aukaverkunum eftir bólusetningu en þær tilkynningar eru komnar hátt í sex þúsund frá landsmönnum okkar! Afhverju fara fjölmiðlar landsins ekki ofan í þá sauma? Aukaverkanir hafa sumar verið mjög alvarlegar, eða hátt í þrjú hundruð manns líða nú af alvarlegum einkennum hugsanlega eftir bólusetningu. Aðrir tala um skert lífsgæði í formi höfuðverkja eða seiðings í höfði alla daga. Þetta var fólk sem kenndi sér ekki meins fyrir bólusetningu. Var virkilega betra að bólusetja allt þetta fólk upp á von og óvon með tilraunaefnin og halda nú áfram að bólusetja það, heldur en að treysta náttúrlegum ónæmisvörnum líkamans? Því er haldið fram af sóttvarnaryfirvöldum að fólk sé að veikjast minna núna af því að það er bólusett. En er það rétt? Það er veikluð veira sem herjar á heimsbyggðina núna og þess vegna erum við að veikjast minna. Þetta vita allir sem hafa kynnt sér veirufræði með Kára, en Kári Stefánsson er einn þeirra sem kenndi okkur þetta í upphafi faraldurs til að róa lýðinn niður. Takk Kári fyrir að hafa róað okkur niður öðru hvoru en það hefði sóttvarnarlæknir mátt gera frekar en að hræða líftóruna úr okkur með endalausum hræðsluáróðri í samstarfi við RUV og aðra nauðbeygða fjölmiðla sem hafa flutt okkur einsleitar fréttir af veirufaraldrinum. Síðan hvenær megum við ekki fræðast um allar hliðar málsins? Almenningur er orðinn tortrygginn á fréttaflutning sem er mjög einsleitur hér á landi. Því miður. Það er ein lítil útvarpsstöð sem hefur þorað í þessi tvö ár, að hafa opna umræðu um þessi mál á Íslandi og fleiri landsmenn eru farnir að hlusta á hana vegna þessa. Fólk vill nefnilega heyra allar hliðar. Þetta þarf allt að endurskoða. Fólk á Íslandi er þokkalega vel gefið og sækir sér upplýsingarnar sjálft á netið ef það fær þær ekki matreiddar af fjölmiðlum landsins. Því miður hefur það verið stefna RUV, ríkisfjölmiðils okkar og fleiri miðla að segja okkur aðeins frá virkni bólusetninga en ekki frá öllum þeim fjölda tilvika þar sem fólk fór illa út úr bólusetningu. Ég veit persónulega um bæði dæmin og ég veit persónulega um óbólusett fólk sem hefur veikst vægt af veirunni núna. Þess vegna skil ég ekki þetta bólusetninga offors. Óhugnanlegar fréttir berast okkur frá umheiminum um frelsisskerðingu almennings sem ekki vill láta bólusetja sig og hefur þá líklega meiri trú á öðrum leiðum til að styrkja ónæmiskerfi sitt gagnvart veirunni. Aldrei eru okkur fluttar fréttir af þessu, til dæmis á RUV um ástandið í Ástralíu, sem er orðið mjög slæmt núna vegna frelsisskerðingar almennings og þjáningar í landinu. Allt vegna bólusetningar þráhyggju yfirvalda. Ég er ekki læknir en ég veit samt að heimsbyggðin þjáist ekki lengur af veiklaðri veirunni. Nei, mannkynið þjáist núna miklu meira vegna frelsisskerðingar og mannréttindabrota af hendi yfirvalda sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ætla að sprauta allt fólkið sitt, sama hvað það kostar. Ekki var gengið svona hart að almenningi með svínaflensu bólusetningu á sínum tíma. Aldrei hélt ég að við myndum lifa þessa tíma sem við lifum núna. Aldrei hélt ég að óbólusett fólk þyrfti að stofna neðanjarðarhreyfingu til þess að efla varnir sínar gegn sjúkri hugmyndafræði yfirvalda í heiminum. Sagan er að endurtaka sig til dæmis í Þýskalandi, þar sem nú á að útiloka óbólusetta frá allri menningu og flestum verslunum. Hafa þeir ekkert lært af sögunni þessir ágætu Þjóðverjar þegar þeir útskúfuðu gyðingum og gerðu tilraunir á þeim í fangabúðum sínum áður en þeir hinir sömu dóu í gasklefunum? Eigum við virkilega að fara aftur í þetta; Að útskúfa fólki sem vill ráða lífi sínu sjálft? Hér á frjálsa Íslandi höfum við barist gegn allskonar fordómum gagnvart minnihlutahópum; fötluðum, samkynhneigðum, nú transfólki, svo dæmi séu tekin. Við viljum að allir njóti sömu virðingar. Líka óbólusettir. Nei, hættum að draga fólk í dilka! Líkaminn er stórkostleg efnaverksmiðja sem þrífst af góðri fæðu, útivist og hreyfingu. Andinn þrífst af listum og menningarviðburðum, samneyti við annað fólk, vinsemd, kærleika og frelsi til athafna. Förum að byggja okkur og samfélag okkar upp! Styrkjum náttúrlegt ónæmiskerfi líkamans áður en næsti heimsfaraldur ríður yfir. Verum sú þjóð sem horft er til, þjóðin sem þorði að fara aðrar og betri leiðir með fólkið sitt óhrædd við framtíðarfaraldra. Með framsýn yfirvöld í fararbroddi, sem vissu að þessi leið sem farin er í dag er dauðadæmd til lengdar og gerir bara lyfjafyrirtækin ríkari en menninguna snauða. Lifið heil! Höfundur er heilsuráðgjafi og jógakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar