Áfall fyrir Hamranna: Ogbonna frá út tímabilið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. nóvember 2021 22:31 Angelo Ogbonna verður frá út tímabilið. Rob Newell/Getty Images Stórt skarð var höggið í titilvonir West Ham United er liðið lagði Liverpool óvænt 3-2 í ensku úrvalsdeildinni í síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Ítalski miðvörðurinn Angelo Ogbonna meiddist í leiknum og verður frá út tímabilið.
David Moyes, þjálfari liðsins, ræddi við blaðamenn í dag en West Ham heimsækir Wolves á morgun er enska deildin fer af stað á nýjan leik eftir landsleikjahlé. Þar staðfesti hann að meiðslin sem Ogbonna varð fyrir gegn Liverpool myndu halda honum utan vallar það sem eftir lifði leiktíðar. Ogbonna var tekinn af velli gegn Liverpool eftir að hafa fengið skurð fyrir ofan augað. Á bekknum fór hann að finna fyrir óþægindum í hné og nú hefur komið í ljós að liðband í hné er skaddað. Samningur hins 33 ára gamla Ogbonna við West Ham átti að renna út sumarið 2022 en West Ham ætlar að nýta sér ákvæði í samningi leikmannsins og framlengja samning hans um ár svo hann verður áfram í Lundúnum til sumarsins 2023. Angelo Ogbonna s contract will be extended by West Ham for another year if he is ruled out for the season by his ACL injury, in order to help aid his recovery.(The Athletic)Class that. pic.twitter.com/uiFpBnsXq3— Footy Accumulators (@FootyAccums) November 9, 2021 Ogbonna hefur leikið í öllum 11 deildarleikjum West Ham á leiktíðinni og er stór ástæða þess að liðið er sem stendur í 3. sæti deildarinnar. Með sigri á Wolves getur West Ham stokkið upp í 2. sæti deildarinnar, tímabundið allavega.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Fimm ástæður þess að Ísland vinni EM Fótbolti „Auðvitað á þetta að vera svona hjá KSÍ líka“ Fótbolti Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Íslenski boltinn „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Íslenski boltinn Opnaði Instagram og sá að hún væri á leiðinni á EM í Sviss Fótbolti City úr leik eftir sjö marka spennutrylli gegn Al-Hilal Fótbolti Efaðist en lagði allt í sölurnar fyrir EM: „Mörg gleðitár“ Fótbolti „Ef þú vilt ekki vera hérna, farðu bara“ Fótbolti Biðla til FIFA um að hætta við miðdagsleiki af ótta við hita Fótbolti EM í dag: Ánægjuleg truflun og þungu fargi létt Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Sjá meira