Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Aron Guðmundsson skrifar 12. september 2026 16:39 Liam Delap virðist kunna vel við sig hjá Nottingham Forest. Michael Regan/Getty Images Lið Nottingham Forest og Ipswich Town unnu bæði dramatíska sigra í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem að sigurmörk liðanna komu á lokamínútum leikja þeirra.
Aston Villa tók á móti Nottingham Forest á Villa Park og hafði fyrir leik dagsins ekki tekist að koma boltanum í netið. Liam Delap kom Forest á bragðið í leiknum með fyrsta markinu strax í upphafi seinni hálfleiksins og heimamenn sofandi á verðinum. Alysson Edward tókst hins vegar að jafna metin fyrir Aston Villa með fyrsta marki liðsins í deildinni á tímabilinu á 74. mínútu eftir stoðsendingu frá fyrirliðanum John McGinn. 1-1. Þegar komið var fram á 88.mínútu tókst Igor Thiago hins vegar að skora mikilvægt sigurmark fyrir Nottingham Forest og auka á ömurð stuðningsmanna Villa því þó svo að liðið hafi unnið Club Brugge í miðri viku í Meistaradeildinni hefur gengið heima fyrir í deildinni ekki verið upp á marga fiska. Lokatölur 2-1 sigur Nottingham Forest. Liðið vermir 11. sæti deildarinnar og er með 5 stig eftir fjóra leiki. Aston Villa er í 19. sæti með aðeins eitt stig eftir jafnmarga leiki. Nýliðarnir með sterkan sigur Á Selhurst Park í Lundúnum voru nýliðar Ipswich Town í heimsókn og sáu leik á borði til að klekkja á heimamönnum í liði Crystal Palace því ekki er andrúmsloftið í kringum félagið létt þessa dagana. Crystal Palace komst hins vegar yfir í dag með marki frá Anan Khalaili strax á 14. mínútu leiksins. Heimamenn voru hins vegar ekki lengi í paradís því rétt rúmum tíu mínútum eftir mark Khalaili jafnaði Emersson metin fyrir Ipswich. Crystal Palace varð svo fyrir áfalli á 34. mínútu þegar að Axel Disasi fékk að líta rauða spjaldið fyrir glæfralega tæklingu og heimamenn því orðnir einum manni færri. Skömmu fyrir lok fyrri hálfleiksins kom Leif Davis, Ipswich Town síðan yfir með marki eftir stoðsendingu Emersonn og stóðu leikar í hálfleik 2-1 gestunum í vil. Þrátt fyrir að vera einum manni færri tókst Crystal Palace að jafna metin með marki frá Jörgen Strand Larsen á 75. mínútu. Komið var fram á 90. mínútu og héldu margir að liðin myndu skilja jöfn en þá tók Zian Flemming til sinna ráða og tryggði Ipswich Town dramatískan sigur með þriðja marki leiksins. Lokatölur 3-2 sigur Ipswich. Nýliðarnir farið vel af stað í deildinni og verma 7. sæti með sex stig. Crystal Palace er í 16. sæti með þrjú stig. Bæði lið fljót að jafna Bournemouth tók á móti Brentford í hörkuspennandi leik þar sem stálinn stinn mættust. Kevin Schade kom Brentford yfir eftir fyrirgjöf frá Yehor Yarmoliuk. Schade var einn og óvaldaður í teignum og skallaði boltann í bláhornið. Forskot Brentford entist ekki lengi þar sem Justin Kluivert jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar. Bournemouth lét kné fylgja kviði og snemma í seinni hálfleik kom Marcus Travernier liðinu í forystu. Liðin náðu þó ekki að halda forystu sinni lengi því fjórum mínútum síðar jafnaði Schade með sínu öðru marki fyrir Brentford og endaði leikurinn með sanngjörnu 2-2 jafntefli.
Enski boltinn Nottingham Forest Aston Villa FC Ipswich Town FC Crystal Palace FC AFC Bournemouth Brentford FC Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira