Hlýtt loft á leiðinni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. október 2021 07:25 Á morgun má gera ráð fyrir að hlýtt loft komi að suðvesturhorni landsins. Vísir/Vilhelm Veðrið verður með rólegasta móti víðast hvar um land í dag. Á morgun er hins vegar von á skilum upp að suðvesturhorni landsins með vaxandi suðaustanhátt og hlýju lofti.
Núna í morgunsárið er fremur hæg breytileg átt víðast hvar, skýjað með köflum og lítlsháttar úrkoma. Er líður á daginn verður norðan 5-10 m/s og léttir til en á Austfjörðum mun norðanstrengur ná á land og útlit fyrir 13-18 m/s þar eftir hádegi. Síðdegis þykknar svo upp með dálítilli snjókomu norðaustantil. Hiti 0 til 6 stig, en kólnar í kvöld, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Á morgun er síðan von á skilum upp að suðvesturhorni landsins með vaxandi suðaustanátt og rigningu, en þurrt að kalla á Norðausturlandi fram á kvöld. Hlýtt loft fylgir skilunum og annað kvöld verður hiti á bilinu 3 til 9 stig. Veðurhorfur á landinu Norðlæg eða breytileg átt 5-10 m/s, skýjað með köflum og lítilsháttar úrkoma, en léttir til um hádegi. Gengur í norðvestan 13-18 austast eftir hádegi. Þykknar upp með dálítilli snjókomu norðaustantil seinnipartinn. Hiti 0 til 6 stig, en kólnar í kvöld. Suðlæg átt, 5-13 m/s í fyrramálið. Dálítil rigning sunnan- og vestanlands en bjart með köflum norðaustantil. Vaxandi suðaustanátt með rigningu og hlýnandi veðri eftir hádegi, fyrst á Suður- og Vesturlandi. Suðaustan 10-18 annað kvöld. Hiti 1 til 7 stig. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s og rigning sunnan- og vestanlands, síðdegis. Hiti 2 til 7 stig. Hægari vindur og lengst af þurrt norðaustantil á landinu með hita um og undir frostmarki. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Suðaustan 5-13 m/s, rigning með köflum austast, en annars dálítil væta af og til. Hiti 3 til 8 stig. Á sunnudag: Breytileg átt og lítilsháttar rigning, en þurrt að kalla norðaustanlands. Gengur í ákveðna norðaustanátt með rigningu eða slyddu norðvestantil seinnipartinn. Hiti 2 til 8 stig. Á mánudag: Norðaustankaldi og rigning eða slydda með köflum norðvestantil, en annars hægari breytileg átt og að mestu þurrt. Hiti 1 til 6 stig. Á þriðjudag: Líklega ákveðin austlæg átt og rigning. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt og rigningu með kölfum, einkum norðvestantil.
Veður Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Erlent Viðvaranir vegna hvassviðris Veður Fleiri fréttir Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Sjá meira