Klopp mjög sáttur með sigur í erfiðum leik: „Vorum ekki að spila frábærlega“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. september 2021 17:01 Klopp í leik dagsins. Clive Brunskill/Getty Images „Einn erfiðasti 3-0 sigur sem ég hef upplifað,“ sagði Jürgen Klopp um sigur Liverpool á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag. „
Við þurftum að gefa allt í leikinn, mikið af hörðum – en sanngjörnum – tæklingum. Við þurftum að vera mjög tilbúnir í öllum aðstæðum. Áttum erfitt við boltana sem þeir sendu á bakvið bakverðina okkar,“ sagði sá þýski um leik dagsins. „Við þurftum að hlaupa mikið í dag. Þessi miðvikudags/laugardags ryðmi er mjög erfiður en við náðum að standa okkur og skoruðum þrjú frábær mörk og nýttum föst leikatriði mjög vel. Það er mikilvægt í leik sem þessum. Þetta eru þeir leikir sem þú þarft að vinna þó þú sért ekki að spila frábærlega.“ „Við vorum ekki að spila frábærlega og þurftum að vinna fyrir því að spila svona vel. Mér líkar vel við það. Þegar þú horfir til baka á svona leiki er það mjög gaman. Þetta er einn af þessum mikilvægu leikjum.“ Um nýjan miðvörð Liverpool „Þú getur séð hæfileikana, þeir eru gríðarlegir. Hann er vanur að vinna tæklingar auðveldlega. Hann er ungur og spilaði mjög vel. Frábær viðbót. Fyrsti heimaleikurinn hjá honum,“ sagði Klopp um Ibrahima Konate. „Hann var með verk í kálfanum. Ég veit ekki stöðuna en vonandi ekkert of alvarlegt,“ sagði Klopp að lokum um Thiago sem fór meiddur af velli í dag.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Sport Átján ára Íslendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“ Sport Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Sport Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Fótbolti Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Sport Ólympíugull og bónorð á sömu Ólympíuleikum Sport Áfrýjar brottvísun af Ólympíuleikunum til Íþróttadómstólsins Sport Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Fótbolti Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúla 1 Fleiri fréttir Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Sjá meira