Sautján ára brotaþoli í kynferðisbrotamáli þarf að koma fyrir dóm Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. september 2021 18:00 Landsréttur Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra þess efnis að sautján ára brotaþoli í kynferðisbrotamáli þurfi að koma fyrir dóm sem vitni.
Í málinu er einstaklingur ákærður fyrir að hafa á áranum 2016 til 2017 haft samræði við brotaþolann, sem þá var þrettán ára, í nokkur skipti, og fyrir kynferðislega áreitni með því að hafa í fjölda skipta sent brotaþola, myndir og myndbönd af sjálfum sér sem sýndu hann á kynferðislegan hátt. Aðalmeðferð í málinu er framundan og á vitnalista þar var nafn brotaþolans ekki að finna. Krafðist verjandi ákærða í málinu þess að brotaþolinn myndi koma fyrir dómara við aðalmeðferð málsins. Ákæruvaldið og réttargæslumaður brotaþolans lögðust gegn kröfunni á þeim grundvelli að brotaþolinn, sautján ára stúlka, hefði þegar gefið skýrslu í tvígang, sem tekið var upp á myndband. Engin ástæða sé til þess að leiða stúlkuna fyrir dóminn á ný. Taldi réttargæslumaður stúlkunnar að það myndi reynast henni mjög þungbært að koma aftur fyrir dóminn. Það myndi tefja fyrir bata hennar. Í niðurstöðu dóms héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti, er vísað í meginreglu þess efnis að öllum eldri en fimmtán ára sé skylt að mæta fyrir dóm sem vitni, sé þess krafist. Þarf stúlkan því að koma fyrir dómara við aðalmeðferð málsins og bera vitni.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Innlent Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira