Árstíðagarðar taka yfir og regnboginn fær nýtt heimili Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. september 2021 14:42 Árstíðagarðar skipa stóran sess í tillögunum. Úr tillögu hönnunarteyma Göngugötuhluti Laugavegar, Skólavörðustígs og Vegamótastígs fær nýja umgjörð þar sem fagurfræði og auga fyrir sögunni er rauður þráður í gegnum alla hönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Regnboginn á Skólavörðustíg fær nýtt heimili og stendur leit yfir.
Forhönnun þriggja, þvegfaglegra teyma á verkefninu 9 skref var kynnt fyrir skipulags- og samgönguráði og borgarráði í vikunni. Tillögurnar voru unnar eftir forskrift og leiðbeiningum borgarhönnunar þar sem aðgengi allra, vörulosun, neyðarakstur og rými fyrir fólk var haft að leiðarljósi. „Úr forhönnun göngugötunnar má sjá innblástur frá persneskum árstíðagarði við Skólavörðustíg, flæðandi línur fyrir mannlíf og stemningu við gatnamót Laugavegar og Vegamótastígs, skemmtileg dvalarsvæði í Bankastræti og á Laugavegi vísar síldarbeinamynstur í klömbruhleðslur gömlu torfbæjanna,“ segir í tilkynningunni. Áhersla á gróður og lýsingu Þar segir að áhersla sé í öllum skrefunum á gróður og dvalarsvæði en með ólíkum hætti eftir því sem hentar hverjum stað. Þá sé leikið með lýsingu þar sem áhrifin minni á sindrandi stjörnur á einum stað og boðskapur í formi fljótandi texta finnist á öðrum stað. Horft upp Skólavörðustíginn. Tröppur eru við útganga verslana og veitingastaða með það að markmiði að bæta aðgengi.Úr tillögu hönnunarteyma „Þarfir notenda og rekstraraðila hafa verið hafðar í fyrirrúmi í verkefninu öllu og hefur gott samráð átt sér stað við hagsmunaaðila göngugatnanna. Þarna verður fólk í forgangi í nýju og öruggu umhverfi samþættrar göngugötu.“ Fram kemur að nafnið „9 skref“ sé beinlínis dregið af því að göngugötusvæðinu er skipt niður í níu skref. „Tilgangurinn með því er að skipta niður framkvæmdum svo sem minnst rask hljótist af þeim. Áhersla sé lögð á að skrefin verði unnin í sátt við nærumhverfið.“ Hönnun samræmd til að mynda heildstætt útlit Hvert teymi hefur lokið forhönnun á þremur skrefum og setja teymin sitt yfirbragð á hönnunina. Þar sem Bankastræti, Laugavegur og Skólavörðurstígur mætast.Úr tillögu hönnunarteyma „Með því móti er hægt að virða staðaranda svæðisins og forðast einsleitni. Lögð verður áhersla á að samræma hönnunina svo heildstætt útlit myndist þó svæðin hafi hvert sín sérstöku einkenni og verður til að mynda hellulögnin samræmd í allri göngugötunni.“ Götugögn, það er bekkir, ljósastaurar og fleira, verði einnig að hluta samræmt á öllu svæðinu. Sums staðar er hugmyndin að stalla götuna næst inngöngum þar sem hallinn er mikill eins og við Skólavörðustíg og í Bankastræti. Það gerir það að verkum að aðgengi allra verður betra og svæði til útiveitinga verður meira. Horft upp Skólavörðustíginn. Tröppur eru við útganga verslana og veitingastaða með það að markmiði að bæta aðgengi.Úr tillögu hönnunarteyma Fjórtán teymi sóttust upphaflega eftir því að taka þátt í þessu verkefni. Teymin þrjú sem urðu fyrir valinu og hafa nú lokið forhönnun eru: 1. Baldur Helgi Snorrason – arkitekt, Nils Wiberg – upplifunarhönnuður og Jóhann Sindri Pétursson – landslagsarkitekt. Skref: 4, 5, 7. Hluti Laugavegar og Bankastrætis. Gult svæði á skýringarmyndinni að neðan. 2. Ragnhildur Skarphéðinsdóttir – landslagsarkitekt, Elín Hansdóttir – myndlistarmaður og Kristján Kristjánsson – lýsingarhönnuður. Skref 1, 2, 3. Vegamótastígur og hluti Laugavegar. Rautt svæði á skýringarmyndinni að neðan. 3. Karl Kvaran – arkitekt og skipulagsfræðingur, Lilja Kristín Ólafsdóttir – landlagsarkitekt og Sigurður Árni Sigurðsson – myndlistarmaður. Skref 6, 8, 9. Skólavörðustígur og hluti Laugavegar. Blátt svæði á skýringarmyndinni að neðan. Skrefin níu í sínum litum. Allar göturnar verða göngugötur árið um kring. Eins og áður segir er forhönnun lokið og við tekur að útfæra hönnunina nánar þar sem áfram verður gætt að og rýnt í útfærslu á aðgengi fyrir alla í samráði við hagsmunasamtök. Þegar að framkvæmd kemur verður framkvæmt í litlum skrefum til að valda sem minnstu raski á þessum fjölförnu götum. Regnboginn neðarlega á Skólavörðustígnum hefur verið vinsælt myndefni ferðamanna sem Íslendinga undanfarin ár. Hann verður málaður á nýjum stað.Vísir/vilhelm Regnboganum sem nú er á Skólavörðustíg verður fundinn annar staður og er leit hafin að nýju heimili að því er segir í tilkynningu frá borginni. Að neðan má sjá meginmarkmið verkefnisins og áherslur hönnunarteymisins að ósk borgarhönnunarteymis Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar má sjá hér.
Göngugötur Skipulag Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Innlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Innlent Fleiri fréttir Viðreisn býður fram undir eigin merkjum í Árborg Ekið á hjólreiðamann og hann fluttur á bráðamóttöku Val á þingflokksformanni bíður betri tíma Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Ísland land númer 197 Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Gjaldþrotið leiðir til hópuppsagnar og afarkostir Bandaríkjaforseta Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Sjá meira